srr wrote:
Geysir wrote:
IT-629 (þessi hvíti sem þú sást í Mosó íbbi) var orðinn verulega slappur.
En stóð samt fyrir sínu, rúllaði á milli eins og ekkert væri en orðinn alltof dapur til björgunar.
Hefði samt mátt hirða slatta úr bílnum áður en honum hefði verið fargað.
Allt of dapur til björgunar?
Ég er ekki sammála þessu

Ég gerði ýmislegt fyrir hann, hann fékk fulla skoðun þegar ég átti hann....
Ári seinna , er hann þá allt í einu orðinn of dapur???

Svona leit hann út hjá mér.....hann getur ekki orðið of lélegur á einu ári.....það er bara ekki hægt





Trúðu mér, hann leit ekki svona út þegar ég fékk hann og né þegar ég lét hann frá mér.
Það hefði þurft að klappa greyinu ansi vel til að gera hann góðann.
Kannski hefðir þú getað gert hann betri en ég hafði ekki aðstöðuna né kunnáttuna til að gera eitthvað fyrir bílinn, allavega ekki á þessum tíma.
Sé samt mikið eftir þessum bíl og ósáttur með það að hafa ekki getað gert eitthvað fyrir hann enda þrátt fyrir ástandið sem hann var í þegar ég seldi hann að þá var hann glettilega ljúfur yfir hellisheiðina og rauk alltaf í gang.
_________________
Geysir Golf - Kíktu í Golf'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard