Updates don´t get any smaller....!
Ég þoli ekki dauðar perur og smá-bilanir, reif mælaborðið úr og skipti um allar perur í mælaborðinu...voru margar dauðar og því sniðugast að skipta bara um allar. Tók clusterinn í sundur og þreif hann, tók Oil-Service dótið í gegn og lagaði sambandsleysið þannig að núna virkar þetta. Bremsuljós voru alltaf kveikt vegna þess að fyrri eigandi hafði "teipað" skynjarann fastann, það var lagað og tók mig til að lagaði aðeins til í víraflækjunni undir stýrinu. Pantaði bakkljósaskynjarann því að ljósin eru ekki alltaf að virka, skynjarinn kostaði skít og kanil og þess vegna allt í lagi að kaupa hann án þess að troubleshoota. Gæti alveg eins verið jarðtenging eða gvuuuð má vita hvað. Skipt um allar festingar fyrir IS lip og búinn að hafa samband við bólstrara varðandi bílstjórasætið. Búinn að finna vatnslekann, setti óhemju af frostlegi á kerfið og beið svo í 2 daga. Frekar áberandi ummerki um leka við vatnsdæluna...stór slanga sem er orðin morkin og ljót en það gerir ekkert því að nýjar slöngur í allt bíða í skottinu.
Fyrir þá sem vita og hafa prófað, hversu mikið mál er að ventlastilla M20 og hvað er standard þjappa á þessum bílum? Vill þjöppumæla og ventlastilla

efast um að þjappan sé léleg því að bíllinn þrælvirkar og almennt sprækur. Vill bara losna við þetta blessaða ventlatikk. Eins getur þetta gefið smá vísbendingu um stand á knastási....að mér skilst
