grettir wrote:
KristoferK wrote:
Ég fordæmi með öllu mótmælendur (skríl) sem beita ofbeldi og þvílíkri villimennsku. Þessir aðilar hylja andlit sitt eins og hinar verstu rottur og beita síðan ofbeldi, skemma eigur almennings og ráðast svo gegn lögreglumönnum sem eru nú bara að sinna starfi sínu... Og það ekki fyrir álitlegt kaup.
Finnst það hreinlega til skammar að þetta fólk haldi því fram að það sé að tala fyrir "hönd þjóðarinnar" - Fyrr skal ég hundur heita. Þessir ónytjungar og spillvirkjar tala ekki fyrir mig og réttast væri að spara piparúðan og ráðast á þessi óargadýr með kylfum, og leyfa þeim svo að sofa úr sér reiðina í köldum, gráum fangaklefa.
Ég, eins og svo margir, er ósáttur með stöðuna í þjóðfélagi okkar í dag en það segir sig að sjálfsögðu sjálft að í þessum aðgerðum eru engar lausnir.
Þú ert eitthvað að misskilja þetta. Skríllinn var allur innandyra. Eyðileggjandi eigur almennings og þykjast tala fyrir hönd þjóðarinnar. Hvers vegna gerir lögreglan ekki neitt í því?
Ég veit nú ekki til þess að þessi umræða snúist um ríkisstjórnina beint og skoðanir okkar á henni koma þessu máli ekkert við. Einnig er það engin afsökun sem réttlætir aðgerðir skrílsins niðrí bæ í dag að segja "en ríkisstjórnin er svo glötuð sklru!?"
En það er hinsvegar pistill í allt aðra umræðu. Því verður hinsvegar ekki breytt að þessar aðgerðir mótmælenda eru með öllu fáránlegar, ólöglegar og bera ekki svo mikið sem vott af siðmenningu. Þarna eru menn með það eitt í huga að brjóta og bramla, maður veit ekki einu sinni alveg hverju er verið að mótmæla... Það er bara þúst verið að mótmæla dæminum og þúst gaurnum sem er bara eitthvað klikk. Það var viðtal ekki fyrir all löngu við einn mótmælenda þar sem hann var spurður útí þetta; Eftir að hafa tekið það mjög skýrt fram að hann var GÍFURLEGA "ósáttur" við stöðuna í landinu þá lagði hann til að Ísland myndi bara fara undir Norðmenn... Hvað er svona fólk að gera þarna, ef ekki bara til að vera með læti og fá einhvern hasar?
Að horfa á þessa apaketti reyna að "mótmæla" fær mig til þess að vona að ríkisstjórnin stígi ekki niður við þessar aðstæður. Ekki vil ég að þessi múgur haldi að hann hafi "unnið"... Ég tek Geir framyfir þessa hryðjuverkamenn.