Ég er að glíma við smá vandamál á e36 bílnum mínum sem byrjaði í haust.
Þetta lýsir sér þannig að eftir nokkurra kílómetra akstur byrjar annað framhjól að bremsa smátt og smátt. Þegar bíllinn er búinn að standa í smátíma (hálftími er nóg) þá er dælan laus og liðug.
Ég er ca. 10 mínútur í vinnu og þá verð ég ekki var við neitt, en ef ég er að keyra lengur en það, þá byrjar dælan smátt og smátt að þrýstast saman.
Sjáið þið fyrir ykkur hvað þetta er að gera fyrir kraftinn á m40b18 mótor
Ég er búinn að taka dæluna undan og hún er alveg laus og liðug, þannig að það er ekki málið að hún festist.
Getið þið ímyndað ykkur hvað getur verið vandamálið?
_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn