Höfuðpaurinn wrote:
það er pottþétt loft á kerfinu hjá þér, ég lenti í þessu í fyrra og það lýsti sér á sama hátt.
Lýsing á því hvernig ég lagaði þetta:
Tekur tappann af forðabúrinu á vatnskassanum og litlu plastskrúfuna við hliðina á, fyllir á þar tel fer að flæða uppúr öllu, setur skrúfuna í og notar svo stutta slöngu og fjarlægir umfram kælivatn úr forðabúrinu (max strikið var ca fyrir miðju ef ég man rétt), tappinn á forðabúrið and you're done.
Ég hef séð mælt með að "mjólka" slöngurnar (þ.e. kreista til skiptis slöngurnar) við ventilinn meðan þetta er opið til að ná mögulegum lofttappa úr kerfinu.