Jón Ragnar wrote:
IceDev wrote:
Quote:
Og persónulega finnst mér að fólk sem að getur ekki styrkt þá um nokkur þúsund krónur á ári ætti að láta björgunarsveitirnar í friði þegar þeir týnast eða þakið fýkur af húsinu þeirra eina nóttina!
Endilega samt fyrir það fólk að prófa að hringja í bílasöluna sem það verslaði flugelda af!
Þeir finna þakplötuna sem fauk af hjá þér, rukka þig 50 þúsund krónur fyrir að hringja í þig og segja þér hvar hún er og taka svo 3% af heildarandvirði þakplötunar í björgunarkostnað

HAHAHAHA!

Ofangreint er ég ekki alveg að skilja, síðast þegar ég vissi þá eru björgunar-
sveitir ekki að rukka fyrir eitt né neitt
Ég var sjálfur að selja flugelda fyrir flugbjörgunarsveitina fyrir þessi áramót
og það var tekið
mjög stíft á afsláttum! M.ö.o. engir afslættir punktur!
Mér er skítsama, þetta snýst ekki bara um peninga, heldur að styrkja gott
málefni og ég get lofað því að hver einasta króna er vel nýtt(amk í flubbanum)!
Gleðilegt ár
