Geirinn wrote:
IvanAnders wrote:
Ég get ekki að því gert, en þetta er eini vettvangurinn þar sem mér er sama þó verið sé að "mjólka" mig
Það er farið svo illa að manni í mikið meiri nauðsynjakaupum og öðru í kringum mann þar sem að ekki ein króna fer í að styrkja gott málefni!
Mér er alveg sama hvað ég fæ mikið af púðri fyrir peninginn, mín ástæða fyrir kaupunum er að ég er að styrkja þá!
ég er líka rjúpnaskytta 
Gallinn er bara að hættan er sú að fólk versli þá frekar við einkaaðila sem eru bara í þessu til að græða....
Kom með góða hugmynd að auglýsingu fyrir björgunarsveitirnar..... "við björgum líka bílasölum og bröskurum...."

Já, en punkturinn hjá mér er sá að mér er persónulega alveg sama þó þeir séu 10x dýrari en aðrir, púðrið er aukaatriði hjá mér!
Og persónulega finnst mér að fólk sem að getur ekki styrkt þá um nokkur þúsund krónur á ári ætti að láta björgunarsveitirnar í friði þegar þeir týnast eða þakið fýkur af húsinu þeirra eina nóttina!
Endilega samt fyrir það fólk að prófa að hringja í bílasöluna sem það verslaði flugelda af!
Annars styð ég að sjálfsögðu samkeppni á öllum markaði... -nema þessum-
p.s. Þetta minnir mig pínu á fólk sem kemur alltaf öðru hverju í DV að væla og með söfnunarreikning, því að húsið þeirra brann ofan af þeim!
Vorkenni ekki fólki sem að ætlaði að spara sér nokkra þúsundkalla í brunatryggingu, frekar en ég vorkenni fólki fyrir að kaupa sér happaþrennu sem það vann svo ekki á

En þetta er náttúrulega allt annar handleggur

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,