by Dr. Stock » Mon 29. Dec 2008 20:16
Heilir og sælir!
Ég á þennan 530xi sem var með þessu banki sem til umræðu var. Afar ánægður með hjálpina sem ég fékk og leysti málið, þ.e. hálfur bolli af Mobil I ATF sjálfskiptioliu stoppaði þetta á nokkrum sekúndum. Takk fyrir góð og skjót viðbrögð. Ekki komið að tómum kofanum hjá BMW mönnum. Bíllinn minn var ekinn um 12000km er ég keypti hann í vor (2006 árgerð) og hafði litið verið ekið í nokkra mánuði þar sem hann stóð á sölu hjá B&L. Þá þegar bar á þessu hljóði sem á þeim tíma hvarf á 1-2 mínútum. Lét smyrja hann við 14.000km og setja á hann Mobil-1 en hljóðið jókst nýlega og hvarf ekki við akstur en hann er nú ekinn 22.000km. Málið semsagt úr sögunni nú en ég læt smyrja hann fljótlega (með Mobil-1) því etv er ATF vökvinn að losa einhver óhreinindi og því rétt að keyra ekki mjög lengi á olíunni eftir að ATF er bætt í. Fékk leiðbeiningar frá öðrum mjög öflugum BMW bifvélavirkja í dag sem sagði að einnig mætti reyna að láta bílinn ganga í 1500snúningum í 3 mínútur og síðan í lausagangi í 15 mín e. það. Oftast færi hljóðið við það. ATF leiðin finnst mér einfaldari og virkaði vel hjá mér.
PS: Varðandi Touring/ekki Touring þá hef ég mjög gaman af þeirri umræðu sem farið hefur fram hér á Kraftinum. Finnst sjálfum Touring fara flestum BMW afar vel, ekki síst E60. Sinn er hver smekkurinn og það væri ekkert gaman af þessu ef allir væru sammála.

BMW X1, 18d, 2014 (E84)
BMW X5, 4,8i, 2007 (E70)
BMW 635CSi,1986 (E24)
BMW 316,1987 (E30)
BMW 530Xi Touring, 2006 (E61), seldur
BMW X5, 2007, (E70), seldur
BMW X5 4,4i, 2004 Seldur