trigger wrote:
Hérna... er þetta ekki bara í beinni á
rúv.is?
Mikið rétt, en síðustu ár hefur verið erfitt að ná þeim í gegnum vefsíðu rúv sökum álags. Sama hefur verið upp á teningnum nú í haust, t.d. beinar útsendingar í byrjun október sem voru með öllu vonlausar í gegnum vefsíðu rúv, en af og til nothæfar af visir.is.
JOGA wrote:
Hvernig virkar þetta "Slingbox". Gott að vita þar sem við hjónin vorum einmitt að velta þessu skaupmáli fyrir okkur.
Þetta er græja sem transkóðar straum í rauntíma - Slingbox er ekki með neitt geymslupláss.
Dæmi: Slingbox er tengt við Digital Ísland/Símabox á Íslandi sem er stillt á RÚV þegar verið er að horfa á skaupið. Slingboxið býr til straum (eins hraðan og nettenging/upload bandvídd leyfir) sem hægt er að horfa á annars staðar í heiminum. Gæðin á þessu ættu að vera margfalt meiri en í gegnum rúv.is
Er farin að hallast að því að best sé að reyna að ná þessu á rúv.is seinna um kvöldið, eða vonast til þess að íslenskir torrent menn komi þessu fljótt inn á netið.
En eftir sem áður, flott ef einhver er með Slingbox í gangi á Íslandi og gæti leyft aðgang að skaupinu.