íbbi_ wrote:
whoot? fyrir hvað var það

annars var ég bannaður þar sjálfur, var ósammála rúnari e-h, mér er alltaf minnistætt að ég fékk áminninguna senda frá honum í PM, og í pm inu stóð af hverju ég var bannaður og hvað ég gat gert til að laga það, en það gleymdist alveg að spá í að ég gat ekki með nokkru móti skoðað einkapóstinn, þar sem ég var bannaður
en nei annars er hópur mjög fínna manna þarna, og á samkomunum í vetur var m.a boðið uppá rjókandi kaffi, það var snilld
Já Benz menn eru fínir gaurar flestir
Ég hef nú sent talsvert efni þar inn sem mér hefur þótt koma Benz við á einhvern hátt
en stundum þá hefur maður dottið í grín gírinn varðandi önnur mál og það hefur þótt svo óviðeigandi sumt af því að ég endaði núna með því að vera útilokaður frá spjallinu.Ef innlegg mín eru skoðuð þar þá held ég að margt eða flest af því sem ég hef sent þar inn sé gott efni.
Ekki get ég nú sagt það um suma sem ástunda það spjall því að innleggin eru oft ekki neitt annað en einhver fjandans ego póstur sem er algjör tímasóun að skoða eins og til dæmis hvaða fótbolta félag er best.
Ég ættla að gefa benz spjallinu frí hér eftir eða alveg þangað til að ég sé mér fært að fyrirgefa þeim en það gæti tekið talsverðann tíma þar sem ég á mjög erfitt með að fyrirgefa ef mér er sjálfum misboðið á einhvern hátt.
Þú ert velkominn hér einmitt svo lengi sem þú talar ekki um Benz þannig þú ert í góðum málum.