elli wrote:jon mar wrote:IceDev wrote:Ég hef nú sjaldan séð óverðskuldað drull yfir verðum hér á kraftinum
margir hérna sem röfla útí verðmiða..
En ég vona að mönnum sé enþá frálst á íslandi að bjóða í bílana það sem þeir tíma að borga.
Eins virðast margir ekkert hafa hugmynd um hvað gagntilboð er þegar maður er að bjóða í bíla.
Það er ekkert verið að breyta því, en hér viljum við (all margir allav.) hafa þetta með öðrum hætti.
er nú bara að meina að margir virðast oft ekkert hafa rænu á því að gera tilboð.
Lenti eins í því fyrir nokkrum árum að ég var að bjóða í bíl, bauð ákveðna upphæð sem mér fannst fullgott fyrir bílinn, en gaurinn sagði bara nei. Hann virtist ekki einu sinni ætla að gera mér gagntilboð þangað til ég spurði hann hvort hann vildi nú þá ekki gera mér eitt slíkt. Svo þegar til kastana kom þá þurfti ég nú ekki að borga neitt tilfinnanlega mikið í viðbót, sem þó var innan þess verðþaks sem ég hafði sjálfur í huganum.



