Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bimmer » Sat 06. Dec 2008 11:01

Phoenix wrote:Ef þú værir ekki með höfuðið svona langt uppí eigin rassgati eins og megnið af smáborgurum heimsins þá sæiru að það er ENGIN ástæða fyrir því að við höfum og ættum að láta svona dellu viðgangast.

Þú ert nú ekki bjartasta peran í seríunni.

Þó að ég aðhyllist ekki ofbeldi eins og þú þá er ekki þar með sagt
að ég sé sammála öllu sem er að gerast og/eða skilji það ekki.

Spáðu í þessu í smá stund og þá kannski sérðu að þetta er ekki
sami hluturinn.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Sat 06. Dec 2008 15:32

Thrullerinn wrote:
bebecar wrote:*edit - það má kannski bæta því við að ef þetta verður raunin í USA þá mun það smita allan heiminn og þá verður líklega hvergi betra að vera en einmitt á Íslandi.

Svolítið súrt að vona að ástandið versni á heimsvísu til að sé gott að búa
á Íslandi, smá "þjóðernissinni" á milli línanna :)
Það þarf mikið að gerast til að það verði beinlínis slæmt að búa á
skerinu og það er í raun beinlínis móðgun að segja að hér væri kreppa
m.v. hvað afar okkar og ömmur upplifðu!

Þetta var alls ekki það sem ég meinti :!:

Aðeins að benda á það að Ísland er líklega með skástu stöðum að vera á í djúpri kreppu... hér er nóg matur, hiti og orka. Þetta átti að skiljast í samhengi við Celeste spádómin um mataruppþot. Það þýðir ekki að maður óski þess að heimurinn versni svo maður sjálfur hafi það "minna skítt".

Mér finnst það nefnilega horfa skökku við að fólk flýji land núna þegar flest lítur út fyrir að nágrannalöndin séu á svipaðri leið. Það getur verið verulega erfitt fyrir útlendinga að fá vinnu t.d. í DK þegar nóg er af dönum á atvinnuleysisskrá, það má því vera að það verði hreinlega að fara úr öskunni í eldinn að flýja land.

Og jú, það að tala um kreppu núna er skilgreiningaratriðið (tvær ársfjórðungar með samdrætti) en ég er nú nógu gamall og á nógu gamla foreldra til að geta upplýst mig um djúpu kreppuna 1929. Afi, sem var ágætlega efnaður útgerðarkall, þurfti að selja fjölskyldugullið þá til að hafa fyrir nauðsynjum. Sú kreppa stóð líka í fjögur ár. Við erum rétt byrjuð á kreppunni núna þannig að hún getur enn versnað.

En ég frábið mér því að vera bendlaður við þjóðernisinna - væri sármóðgaður :( ef það væri meiningin sem ég reikna nú ekki með að sé tilfellið :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Thrullerinn » Sat 06. Dec 2008 18:42

bebecar wrote:

:lol: ..þetta átti ekki einu sinni að vera skotl

Ég er þjóðernissinni, bara nett stoltur af því, er sammála þér með að
Ísland væri góður staður í djúpri lægð, nóg af fiski, rollum og almennt er
landinn hörkuduglegur!

Held að margir hafa svolítið gott af því að slaka aðeins á og kynnast
náunganum og jafnvel draga upp spilin, elda og einfaldlega gíra sig niður í
gegnum líðandi dag. Ég er amk. byrjaður að draga fram bækurnar..

Annars þekki ég merkilega marga sem eru á leið til Noregs og Svíðþjóðar
til að fara vinna og það er búið að fá vinnu, vona að þeir komi einhvern-
tímann tilbaka.. :roll:
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bebecar » Sat 06. Dec 2008 20:24

Ég átti nú ekki von á því að þú værir að skjóta heldur :D

En jú, draga saman seglin og aðeins að reyna að njóta þess sem maður hefur. Fyrir mitt leiti þá saknar maður fjölskyldunnar... orðið takmarkað sem maður leyfir sér með gengið svona og þá vantar ansi marga vini og vandamenn til að hanga með...

Svo eru engin fjöll hérna :(
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby bimmer » Mon 08. Dec 2008 10:04

GVT komin undir 200.....
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby arnibjorn » Mon 08. Dec 2008 12:42

Ég skil ekki..

Af hverju er krónan að styrkjast og hvenær kemur svo stóri skellurinn sem að allir eru búnir að vera bíða eftir?
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Thrullerinn » Mon 08. Dec 2008 12:59

arnibjorn wrote:Ég skil ekki..

Af hverju er krónan að styrkjast og hvenær kemur svo stóri skellurinn sem að allir eru búnir að vera bíða eftir?

Útflytjendur geta ekki átt erlenda gjaldmiðla, það varðar við lög.

Í raun er einstreymisloki á gjaldeyri sem vísar í átt að krónunni vegna hafta..

Það liggja etv. litlar upphæðir bakvið styrkinguna??
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby JOGA » Mon 08. Dec 2008 13:08

Thrullerinn wrote:
arnibjorn wrote:Ég skil ekki..

Af hverju er krónan að styrkjast og hvenær kemur svo stóri skellurinn sem að allir eru búnir að vera bíða eftir?

Útflytjendur geta ekki átt erlenda gjaldmiðla, það varðar við lög.

Í raun er einstreymisloki á gjaldeyri sem vísar í átt að krónunni vegna hafta..

Það liggja etv. litlar upphæðir bakvið styrkinguna??

Thetta er natturulega ekki "alvoru" flot. Og ju thad eru ekki miklar upphaedir a bak vid thetta ...

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/12/08/ekki_mikil_vidskipti_med_kronu/
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Postby arnibjorn » Mon 08. Dec 2008 13:16

Og þessi höft sem eru í gangi núna sem að valda því að krónan er að styrkjast, er það bara tímabundið?
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby gstuning » Mon 08. Dec 2008 13:20

arnibjorn wrote:Og þessi höft sem eru í gangi núna sem að valda því að krónan er að styrkjast, er það bara tímabundið?

Næstum án efa.
Eins og helstu fræðingar segja þá er ekki hægt fyrir landið að starfa með svona höft, þess vegna verður að minnka höftin á endanum og þá ætti að koma skellurinn, svo skil ég það allaveganna.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby thisman » Mon 08. Dec 2008 13:28

arnibjorn wrote:Og þessi höft sem eru í gangi núna sem að valda því að krónan er að styrkjast, er það bara tímabundið?

Það eru ákveðnar vísbendingar sem benda til þess já, en ég held að það eina sem er hægt að segja með vissu sé að enginn veit almennilega hvernig þetta mun þróast.

Hitt er svo annað að mér þætti mjög fróðlegt að heyra sjónarmið þeirra sem vildu láta sleppa krónunni algjörlega lausri, hvernig þeir hefðu þá séð fyrir sér að komið í veg fyrir allsherjar hrun sem hefði fylgt þeirri gríðarlegu verðbólgu ef gengisvísitalan hefði hangið í kringum 300 í einhverja mánuði.

Ég sveiflast sjálfur til beggja hliða gagnvart þessu en vantar dálítið af góðum rökum þegar kemur að því að svara ofangreindri spurningu. Það er svo fjandi ódýrt að segja bara að við hefðum átt að "taka sénsinn". Sú hugsun kom okkur í upphafi í þetta skrambans vesen sem við erum í núna.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby arnibjorn » Mon 08. Dec 2008 13:36

thisman wrote:

Segðu. Ég vona bara að það sem er í gangi núna eigi eftir að takast.. :lol:

Það voru allavega allir að væla um að fá utanaðkomandi til að hjálpa okkur og núna veit ég fyrir víst að bæði hjá Fjármálaráðuneitinu og FME hefur IMF verið að taka flestar ákvarðanir.

Ég allavega hef ekki næga kunnáttu á þessu til að botna í því sem er að gerast.

Maður er bara alveg lost hérna.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Zyklus » Mon 08. Dec 2008 13:51

Af því að einhverjir voru að spyrja að því hér fyrr á þræðinum við hvað ég starfa þá er ég bara í námi eins og er.

Það væri nú alveg dásamlegt ef að 20% styrking krónunnar á 3 dögum væri raunveruleg en því miður er það ekki svo.

Vegna nýju gjaldeyrislaganna eru veruleg höft á kaupum á gjaldeyri, auk þess sem innflutningur er í lágmarki og útflytjendur verða að koma heim með gjaldeyrinn.
Það er því nánast búið að taka af allan söluþrýsting af krónunni vegna þessara hafta og þá er auðvitað eðlilegt að krónan styrkist.

Skv. nýju lögunum geta höftin varað í 2 ár en það á að endurskoða lögin í mars.

Þegar höftunum verður aflétt er ég ansi hræddur um að útstreymið á krónum verið talsvert.
Það eru nú um 550 milljarðar að held í krónubréfum (eða jöklabréfum eða hvað sem menn vilja kalla þessi bréf).

Annars sýnist mér fleiri vera að komast á þá skoðun að best hefði verið að taka skellinn strax í stað þess að fresta honum, man t.d. eftir hagfræðingunum Tryggva Þór og Jóni Daníelssyni sem báðir hafa sagt að taka ætti skellinn strax.
En auðvitað er þetta erfið staða, ég skil það. Ég hef hins vegar ekki trú á að gjaldeyrishöft séu rétta leiðin, held að það sé bara eins og að pissa í skóinn.

Með þessum gjaldeyrishöftum er í raun verið að framkalla gervistyrkingu og því er ansi hætt við því að þegar krónan verður raunverulega sett á flot (sem þýðir það að hver sem er getur keypt og selt krónur) að þá muni fólk nýta sér þessa gervistyrkingu til að reyna að losa sig við krónurnar.
Þessi styrking kemur t.d. erlendum krónubréfaeigendum sérlega vel því eftir því sem krónan styrkist því meiri gjaldeyri fá þeir fyrir krónurnar þegar þeir loks komast út.
Hefði krónan verið raunverulega sett á flot og engin gjaldeyrishöft væru þá hefði verið hægt að hreinsa kerfið af þessum krónubréfum og það hefði kostað okkur lágmarksgjaldeyri því krónan myndi hrynja til að byrja með. En þegar búið væri að losa okkur við þessi bréf, sem hanga nú yfir okkur, þá gæti Seðlabanki Íslands keypt krónur á þessu botngengi og þannig í raun hagnast því eftir að krónubréfin væru farin þá ætti leið krónunnar bara að liggja upp á við.

Það verður allavega fróðlegt að vita hvað gerist þegar krónan verður sett raunverulega á flot.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby Eggert » Mon 08. Dec 2008 13:58

Ef krónunni hefði verið sleppt lausri, þá jú hefði hellings fjármagn farið úr landi. En það fjármagn hefði farið (á kostnað ríkisins) á spottprís og þar af leiðandi er það heilmikið minna tjón.

En varðandi verðbólgu, að þá hækka bara í verði innfluttar vörur. Það er verið að berjast við að flytja meira út heldur en inn, og það gengur vel, svo það gæti tekið einhverja mánuði upp í ár að rétta sig við er krónan styrkist. En ég trúi því frekar að það hefði verið betra að rífa plásturinn af snöggt heldur en að vera að hjakka í sárinu með svona "flot" stunti. Svo þegar krónan verður orðin sterk með þessu björgunarkútafloti (sem er bara fake), þá þurfum við að greiða þetta fjármagn úr landi (þegar það verður opnað), á mikið hærra verði.

Það hefði bara átt að eyða púðrinu í að sjá til þess að þetta bitnaði ekki eins illa á þeim sem eru með lán, eins og VG eru að reyna að koma á laggirnar, og leyfa krónunni að fara sinn veg. Það er mín skoðun á þessu...
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby thisman » Mon 08. Dec 2008 16:05

Já, þið segið nokkuð. Ég verð nú að viðurkenna að þetta hljómar skrambi skynsamlega hjá ykkur, að drífa sig bara í gegnum lægðina en einhver hlýtur ástæðan að vera að hin leiðin var farin. Er hún hugsanlega þekktari stærð en að taka skell núna sem við vitum lítið um hvernig myndi þróast á næstu mánuðum? Gefur þetta ríkinu möguleika á að koma eignum úr þrotabúi bankanna í verð áður en krónan verður látin fljóta og freistað þess þannig að Íslandi verði sterkara á pappírum og fjármagnið streymi því ekki jafn hratt út þegar að fleytingu krónunnar kemur? Hver er eiginlega ástæðan?

Ég er ekki svo einfaldur að halda að þetta ágæta fólk sem kemur að þessu málum sé allt svo vitlaust að það taki bara rangar ákvarðanir. Þetta er fólk sem er í sömu stöðu og við hin, með sömu lánin og í sama baslinu og ég hef enga ástæðu til að ætla að þau geri ekki sitt besta. En jú, ég verð nú samt að játa að ég sé í fljótu bragði ekki af hverju hin leiðin var ekki farin og þetta klárað af - þætti mjög gaman að heyra einhvern sem talar fyrir því máli því einhverjir hljóta kostirnir að vera.

Gagnvart verðbólgu þá er það rétt, það eru innfluttar vörur sem hækka í verði - en ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því hvað stór hluti af því sem við teljum vera "íslenskar vörur" er í raun innfluttur. Sem dæmi má nefna að við framleiðslu á venjulegri jógúrtdollu þá er kostnaðurinn við innflutta efnið (pakkningar, bragðefni, sykur o.s.frv.) hærri en við mjólkina sem er notuð í hana!
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 56 guests