Jónas wrote:
Náði að losa mig við nokkur þúsund evrur á 187.
Er hinsvegar með reikningin opinn og allt fer aftur inn þegar að það eru blikur í loftinu að þessu verður aflétt.
Þegar þú ert búinn að selja gjaldeyrinn þá er ekki aftur snúið, þú ert læstur inni í krónunum. Þú getur selt gjaldeyri fyrir krónur en þú getur ekki keypt aftur gjaldeyri fyrir krónur nema þá gegn undanþágu (ef þú ert með farseðil o.s.frv.). Þess vegna myndi ég fara mjög varlega í að selja allan gjaldeyri sem maður á. Það að eiga gjaldeyri er eiginlega besta vörnin sem þú getur haft. Ég myndi allavega halda í eitthvað af gjaldeyrinum þangað til krónan verður raunverulega sett á flot (þ.e.a.s. þegar þeir sem vilja selja krónur geta það, það sé ekki bara hægt að kaupa krónur eins og núna).
Annars er ánægjulegt að sjá þessa styrkingu í dag. Það veitir ekki af einhverjum ánægjulegum fréttum svona rétt fyrir jólin.
Hins vegar skyldu menn ekki láta þetta skapa einhverjar falsvonir. Á endanum þurfum við að hleypa útlendingunum út með sitt fé. Við höldum því ekki í gíslingu endalaust.
Fólk verður líka að athuga það að krónan er í raun með björgunarvesti, björgunarhring og í flotgalla þannig að það er kannski ekki skrítið að hún skuli styrkjast. Það er í raun búið að útiloka alla þá sem vilja selja krónur frá markaðnum.
Svo er þetta sérlega ánægjulegt fyrir erlenda krónubréfa eigendur, nú fá þeir meiri gjaldeyri fyrir krónurnar sínar þegar þeir sleppa út með sitt fé.