Jæja þá kom að því að blæjubíll komst í safnið.
Eftir vinnu í dag var haldið í smá Roadtrip til Stykkishólms og náðum þar í Boxster S árgerð 2002.
Þessi bíll var fluttir inn í byrjun árs og náði að telja nokkra kílómetra áður en það kveiknaði í honum.
Varð smá eldsvoði í vélarsalnum, en sem betur fer hljóp eigandinn mjög hratt inn í næstu búð og fékk lánað slökkvi tæki.
Sem hann reif niður af veggnum með festingu og öllu. Náði hann að slökkva í honum, en soggreinin, sem er úr plasti bráðnaði og nokkir aðrir hlutir sviðnuðu.
Var það til þess að VÍS borgaði hann út og setti síðan á uppboð.
Sá sem að keypti hann þar eyddi síðan slatta í að laga hann og var hann nærri því búinn þegar ég eignast hann núna.
Eftir er smá samsettning og frágangur.
Eitthvað sem maður ætti að redda fyrir vorið.
En aftur að bílnum. Þetta er sem sagt Boxster S árgerð 2002.
Vélin er 3,2 lítrar 6 cyl. boxer og skilar 250 hestöfl. Búið er að setja í hann flækjur og nýtt púst, sem á að gefa eitthvað. Gírkassinn er 6 gíra.
Útlitsbreyting er að það eru komnir GT3 sílsar og framstuðari.
Felgur eru 18 tommur.
Ekki eru fyrirhugðaðar neinar breytingar á bílnum en lofa samt ekki að standa við það.
Þannig að núna á ég sem sagt orðið:
Porsche 924 x 3, einn af þeim er Turbo
Porsche 944 Turbo S
Porsche Boxster S
Og ekki má gleyma mínum trygga Audi A6 Quattro Avant sem skilar mér í vinnuna á hverjum degi.
