við erum búnir að skeggræða zondu vs veyron hérna, bæði bílar sem engin hafði heyrt um meðan við vorum með plaköt af svona apparötum hangandi á veggjunum hjá okkur, persónulega var ég með plakat af gulum spoilerslausum svona, og muna eflaust einhevrjir eftir þessum plakötum,
við virðumst flestir vera óvenjusammála um kúlfactor þessa einstaka merkis,
og mér finnst þeir fáir svalari en þessir hérna
upprunalega diablo... mér finnst þetta ennþá einhver sá fallegasti supercar ever, hann lýtur ekki prósentuni verr út heldur en fyrir þeim 18 árum rúmum sem hann kom á markaðinn,
hérna er einn 1991 afturdrifinn á ebay,
mér persónulega finnst þeir fallegastir eins og þessi, eitt af fáum bílum þar sem mér finnst hann fallegastur í byrjun, og svo finnst mér þeir skemma hann aðeins með hverri breytinguni nánast, 99 komu þeir með nýj mælaborði, hönnuðu af bang og olufsen, sem mér finnst "orka tvímælis" hönnunarlega séð, auk þess sem mér finnst þeir betri með lokuljós heldur en 300zx ljós, og eitthvað flr, á ekki VT (4wd) diablo að vera einhver erfiðasti sportbíll í akstri ever? eða var það afturdrifsbíllinn?
má ekki gleyma þó,, þessir bílar eru með sömu hröðunar og hámarkshraðatölur og öll helstu trompinn í dag, t.d er 91 diablo rwd undir 4sec í 100, og nær 212mph hraða, [/img]