íbbi_ wrote:
viðhaldsfrír porsche? því trúi ég ekki, mér hefur nú fundist þetta merki síst minna bilanafrítt en aðrir þýskir bílar svo ekki sé meira sagt,
en ég held að þetta sé mikil græja, ekki spurning, og fýla hann frá sumum sjónarhornum,
mér finst reyndar cayanne mjög fallegir
911, Boxster og Cayman hafa verið að koma vel út úr áreiðanleika könnunum (veit ekki með Cayenne) og nánast öll línan er með 30 þús á milli skoðana og olíuskipta. Það er ansi mikill munur á því og að þurfa þjónustu á 7500 eða 10000 kílómetra fresti.
Ég er nú ekki að meina að þeir bili ekki neitt - bara að vísa í að þetta er eini framleiðandinn í þessum flokki bíla sem býður bíla með svona þjónustupakka á meðan þeir skástu aðrir eru með 15 þús en sumir ekki nema 7500 sem stendur í vegi fyrir því að fólk kaup þá bíla til að nota þá að einhverju ráði (enda semsagt sem aukabílar eða eru keyptir sem slíkir).
PDK hjálpar svo ennfremur til við þetta en sú kúpling á að duga bílinn með olíuskiptum á 70k fresti.
Semsagt, bara keyra og service annað slagið.
* smá edit - bara svo það á hreinu þá var BMW að toppa í viðamikilli áreiðanleika könnun í Bretlandi og fór þar fram úr Toyota og Honda. Þetta er semsagt ekki neitt skot hjá mér, bara finnst það heillandi concept að hafa svona öfluga bíla og samt minni áhyggjur en ef maður væri á Toyota af viðhaldinu

- það er annað mál með dekk hinsvegar
