srr wrote:
///MR HUNG wrote:
Ég er algerlega á móti því að svona haugur sem er lagaður með skítugu rassgatinu fari á götuna.
Miðað við tjónið á framan þá á þetta að vera skráður tjónabíll og á ekki að fara á götuna nema eftir fullnægjandi viðgerð....Sem þetta er ekki!!!
Hef ekkert á móti þessu commenti svosem....
En þetta er ekki fyrsti bíll sem "sleppur" við tjónabíla-stimpilinn.
Hvað með alla Neon SRT bílana.....eru þeir allir skráðir viðgerðir tjónabílar?

heyrðuheyrðu hvað ertu að bulla núna???
vinur minn flutti nú inn meirihlutan af þessum bílum sem er hérna, og já þeir eru skráðir tjónabílar, og já þeir eru mjög vel lagaðir af fagaðilum, þeir voru rifnir, sendir á réttingaverkstæði, réttir, svo var fengið þá til baka og raðað saman, og svo send aftur á verkstæði til að mála,
ég útvegaði varahlutina á nánast alla þessa bíla, og var eitthvað viðriðinn viðgerðina á sumum þeirra, og get alveg vottað að það var hvorki sprað vinnu né tíma í nokkurn þeirra, enda hafa þeir staðið sig mjög vel,
annar kunningi minn flutti svo inn 3stk, hann er með réttinga og sprautuverkstæði, þannig að það þarf litlar áhyggjur af þeim að hafa,
fyrir utan bílana frá þessum tveim mönnum, sem eru 10+ þá hafa 3 srt4 verið fluttir inn heilir, og það munu vera srt4 bíllinn minn, sem er kóngablár og fluttur inn heill 04 eða 05, svo er annar svartur, og einn rauður sem var velt hérna heima,