Krónan er ekki vandamálið heldur prentun á peningum í gegnum veðsetningu, semsagt mega skuldsetning.
Landið hefði alveg getað farið álíka langt í skuldsetningu með evru - viðbrögðin við því væri ekki gengisfelling, heldur enn meiri samdráttur en sá sem við þolum núna og svakalegt atvinnuleysi (líkt og í Svíþjóð þar sem opinberar tölur segja 5% en margir vilja meina að ættu að vera nær 20%
http://truckandbarter.com/mt/archives/000589.html.
Ég er ekki sérlega hrifinn af ESB einfaldlega vegna þess að ég sé hve spillingin er mikil þar. Sambandið er tiltölulega ungt á eftir að sýna að það ráði við erfiðleika eins og við stöndum frammi fyrir núna. Það á einnig eftir að taka á sig gríðarlegar breytingar til þess að lifa ad sem supranational samband - og jú, við afsölum sjálfstæði okkar til Brussel (að hluta til).
Spánn, Portúgal og Ítalía eru öll með evru og eru að glíma við mörg svipuð vandræði og við eigum í núna. Bretland er með bankakerfi sem skuldar þrisvar sinnum meira en GDP og þeir eru vissulega ekki með evru en í ESB samt sem áður.
Það má svo minna á að Grænland sagði sig úr EU
Það sem mér finnst bestu rökin fyrir EU aðild er skilvirkara eftirlit með stjórnvöldum en staðreyndin er bara sú að við njótum þess að mestu leiti núna en erum bara ekki að nýta það.
Ég hef þannig mikla samúð með því sjónarmiði að litlu verði breytt á Íslandi nema með inngöngu í EU og það finnst mér vera einna sterkustu rökin í dag.
Hinsvegar, ef að pælingin er sú að taka upp evru - afhverju liggur þá að fara í aðildarviðræður núna? Væri ekki betra að ná tökum á ástandinu og fara svo í aðildarviðræður - 2012 t.d. Við förum hvort eð er ekkert fram fyrir önnur lönd í röðinni - það er mikill miskilningur að halda að það gangi upp.