bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 12:27

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 94, 95, 96, 97, 98, 99, 100 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 20:50 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég er algjörlega sammála því að Davíð eigi að víkja, FME líka og ríkisstjórnin á að bera pólitíska ábyrgð í næstu kosningum.

Efnahagsstjórnin hefur ekki verið nógu góð, en eftirlit hinsvegar hefur ekki verið neitt og það er mun alvarlegra.

Hinsvegar held ég að það verði að horfa á þetta út frá því hvað það er sem hefur valdið okkur vandræðum.

Það eru erlendar skuldir.

Þeir sem stofnuðu til þeirra, þeir bera höfuð ábyrgð - og það eru bankarnir.

Stjórnvöld og eftirlit bera ábyrgð á því að hafa látið það viðgangast.

Þannig að það fer alveg rosalega í mig þegar öllu er dömpað á Davíð og Geir, en fólki virðist vera alveg sama þó einhverjir 15 kallar hlaupist á brott með þúsundir milljarða og skilji okkur eftir í súpunni.

Bankarnir þurftu ekki að fara svona langt í skuldsetningu. Hver heilvita maður sem rekur fyrirtæki með það fyrir augum að veita atvinnu og skila arði um aldur og ævi hegðar sér ekki eins og engin sé morgundagurinn í vexti og skuldsetningu.

Þessu til stuðnings má benda á að það er fullt af bönkum sem hafa ekki gert þetta í kringum okkur þó þeir hafi getað þetta.

Höfuð ábyrgðin er hjá þeim sem stofnuðu til skuldanna - það eru hreinar línur - alveg eins og bankamennirnir segja að það þvingi þig engin til að taka lánin hjá þeim þá á það sama við um þá.

Ég er bara svo hræddur um að gagnrýni á þessa 15 menn muni verða undir. Ástæðan er sú að til þess að gagnrýna þá þarf fólk að líta sér nær en um þessar mundir kóa allir alveg villt og galið enda hálf þjóðin búin að vera í vinnu hjá þessum aðilum.

Mér gæti reyndar ekki verið meira sama um Davíð, en vandamálið verður ekki leyst með því að skella skuldinni á hann því ef það er gert ganga landráðamennirnir ennþá lausir, jafnvel kvittir eftir að hafa samið um skuldirnar í nýju bönkunum. Ef þeim leyfist það, þá er það raunverulegur glæpur yfirvalda. EF þeim leyfist það ekki, þá nægir að yfirvöld sæti pólitískri ábyrgð í næstu kosningum.

FME og seðlabanki bera hinsvegar ekki pólitíska ábyrgð og því á að hreinsa út þar og auðvitað á fagfólk að vinna þessi störf. Nóg til af fólki í þessi störf!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 21:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Magnað:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 22:26 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
bimmer wrote:
Magnað:

Þessi maður er klárlega ekki hæfur!

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 22:40 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Látið ekki svona. Beina línan við Davíð hefur slitnað þarna, hann vissi ekki hvað hann átti að segja.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 22:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Annað áhugavert:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 23:20 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
bimmer wrote:
Magnað:

Þetta er Geir til mikillar minnkunar.

En sáuð þið fréttirnar í kvöld í ríkissjónvarpinu?
Þar var frétt um fjölmiðlaáætlun þessa norska hernaðarráðgjafa.
Það var hálf súrrealískt að hlusta á þessa frétt, þessi áætlun hefði sómað sér vel hjá kommúnistunum í Norður-Kóreru eða fyrrum Sovét. Ótrúlegt.

http://new.vb.is/frett/1/50062/vernda-thurfi-forstjora-fme-fyrir-fjolmidlum
Quote:
Vernda þurfi forstjóra FME fyrir fjölmiðlum

Vernda á forstjóra Fjármálaeftirlitsins fyrir fjölmiðlum, að því er segir í áætlun Björns Richards Johansen, sérstaks ráðgjafa stjórnvalda vegna efnahagskreppunnar, sem fenginn var að láni frá Glitni í Noregi til verksins.

Þetta kom fram í fréttum Sjónvarps í kvöld. Þar var lesið upp úr áætluninni þar sem ráðgjafinn lagði meðal annars áherslu á að forsætisráðherra og bankamálaráðherra ættu að vera sterkir.

Þá var í Sjónvarpsfréttinni sýnt brot frá því þegar fjölmiðlar ræddu við forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Þar stöðvaði Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, spurningar fjölmiðlamanna eftir rúmar tvær mínútur með því að klappa lófunum og segja: "Þetta er gott."

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 23:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Stanky wrote:
bimmer wrote:
Magnað:

Þessi maður er klárlega ekki hæfur!

Þetta var VERULEGA áhugavert viðtal. Hann fór klárlega yfir strikið og hegðaði sér ekki eins og forsætisráðherra sæmir.

Það er svo reyndar annað mál að ég get vel skilið hans "pirring" varðandi ítrekaðar spurningar um Evru og dauða krónu. Það er mjög lítið sem við getum gert varðandi gjaldmiðlamál á næstu mánuðum annað en að halda krónu og þá skiptir öllu að REYNA að byggja upp það traust sem hægt er til að lágmarka tjón. Það er mjög mikil umræða um annað í þjóðfélaginu sem er vel skiljanlegt en örugglega nett pirrandi fyrir þá sem berjast við að láta hana virka í það minnsta næstu mánuði.

En fréttamaðurinn stóð sig ágætlega þó honum hafi bersýnilega verið brugðið þarna rétt í byrjunninni.

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 23:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
...en fattaðiru það Jón Garðar að þetta vídjó er allavega ársgamalt? Það lítur soldið út eins og það hefði bara verið lokað á alla evruumræðu án þess að spá í hlutina. Og sjáum svo hvar við erum í dag...

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 21. Nov 2008 23:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Eggert wrote:
...en fattaðiru það Jón Garðar að þetta vídjó er allavega ársgamalt? Það lítur soldið út eins og það hefði bara verið lokað á alla evruumræðu án þess að spá í hlutina. Og sjáum svo hvar við erum í dag...

:shock: :oops: :lol:

Nei það fattaði ég ekki. Enn áhugaverðara og lætur Geir líta VEL kjánalega út.

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 00:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Nákvæmlega! Þetta vídjó er frá því í janúar '07.

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 01:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Nokkuð góðir punktar hér:
http://www.visir.is/article/20081121/SKODANIR03/602314926/-1

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 10:24 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Þetta evru-tal er bara búið að vera heimskulegt alveg frá upphafi.

Það að taka upp evru einhliða þýðir bara að öllum okkar eignum í krónum yrði hent. Ef fólk vill það virkilega þá er það alveg hægt, en það þyrfti þá að taka ansi stórt lán til að koma efnahagslífinu af stað eftir það og það yrði lán með veði í einhverju heimavið (ekki gjaldeyrisskiptasamningar t.d. eða sala á krónum því það vill þær engin ef við ætlum að leggja þær niður).

Evra fæst ekki nema með því að ganga í Evrópusambandið fyrst. Og svo verður ekki hægt að taka upp evru nema uppfylla Maastricht skilyrðin, þau eru meðal annars lá verðbólga (ekki hærri en 1.5% yfir meðaltali þeirra þriggja EU ríkja sem hafa lægstu verðbólguna) svo eru kröfur um lítinn fjárlagahalla og skuldir ríkisins mega ekki vera meira en 60% af GDP.

EF við náum þessu (og er það hægt á meðan verðtrygging er við líði?) þá er ekki endilega mikil þörf á að taka upp evru.

En semsagt, evru-talið er bara rugl nema það sé á réttum forsendum.

Einhliða upptaka evru - það er bara Kosovo style!

Það er skammarlegt að Geir að láta svona samt. Þó fólk viti ekki hvað það er að tala um með tali á upptöku evru, þá verður bara að hamra á því og útskýra á einfaldan hátt afhverju það er ekki hægt. Það var aldrei gert og aldrei reynt - í það minnsta ekki af stjórnvöldum.

Að fara í samningaviðræður við EU við núverandi aðstæður er bara glapræði að mínu mati. Við höfum enga samningsstöðu lengur og EU (Bretar, Spánverjar og Portúgalar) vilja komast í fiskimiðin okkar.

Nú er ég ekki alveg klár á þessu, en mig minnir að landhelgin sem við myndum fá eftir inngöngu í EU yrði 15 mílur í stað 200. Við getum því gleymt fiskveiðistjórnun.

Og svona smá puttasleikja. Það er ekki sér íslenskt fyrirbrigði að skýrslum sé stungið undir stól. Núna í haust var skýrslu EU um túnfiskveiðar (Blue Fin) stungið undir stól svo að túnfiskur yrði ekki friðaður vegna ofveiði EU.

Annars eru greinar sem þessar mjög holl lesning og þær sýna að þetta er ekki allt Davíð að kenna, að minnsta kosti ekki ástandið í Bretlandi :lol:

http://www.iht.com/articles/2008/11/17/business/views18.php
Quote:
Britain, like Iceland, in big trouble

http://business.timesonline.co.uk/tol/business/columnists/article5209440.ece
Quote:
Britain is in no position to laugh at Iceland’s problems

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 11:12 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
bebecar wrote:

Halló....

Afhverju halda allir and-evrópusinnar að ESB sé eitthvað risastórt tröll sem komi og ríði okkur í rassgat?

Afhverju hafa ekki lönd sem hafa farið í inngöngu í ESB séð eftir því og jafnvel kvartað yfir því í fjölmiðlum?

ESB kemur ekkert og tekur af okkur efnahaginn, þeir taka ekki af okkur fiskinn, landbúnaðinn, túrisman eða álið, þeir ættu frekar að styrkja okkur.

Það má ekki gleyma löndum eins og BRETLAND, sem áttu olíu (reyndar búin núna), þeir eiga gas og kol..... ESB er EKKI að "ræna" þessu af þeim eins og risastórt tröll - það er hreinlega bara ekki þannig.

Hafa menn ekkert skoðað þessi lönd sem hafa farið í ESB? Portúgal, ég nefni þá aftur sem dæmi - þetta er fisk og túristaland - þeir voru drullu hræddir um það að "ESB tröllið" kæmi og rændi af þeim fisknum, nei, frekar en ekki, þá friðuðu þeir fiskveiðiþorpin, með sína landhelgi og það má ENGINN, ENGINN veiða þar fyrir innan, nema þorpið (og mjög líklega aðrir Portúgalir).

Þetta eru allt samningsmál - hvernig fer með okkar auðlindir. Fiskurinn verður ekki tekinn af okkur, túrisminn verður ekki tekinn af okkur, álið verður ekki tekið af okkur, vatnsorkan verður ekki tekin af okkur..... þetta verður EKKI tekið af okkur.

Að sjálfsögðu eru gallar á því að fara í ESB - en góðu hlutarnir vega bara mun þyngra en þessir gallar. Loksins, í sögu íslensk "lýðræðis" fáum við gjaldmiðil sem er ekki stjórnað af Seðlabankanum á Íslandi, með það eina í huga að, það veiddist ekki nóg, veikjum krónuna svo við fáum meira fyrir fiskinn. <- og ég verð brjálaður ef einhver hérna inni ætlar að fara neita þessu.

Krónan hefur í gegnum tíðina verið ákveðið leiktæki fyrir einhverja uppa, sem hefur verið mokað undir af ríkinu, þeir styrkja og veikja krónuna fyrir sinn hag. Og þetta þekkist í fleiri löndum, á borð við Kólumbíu, Venezuela, Zimbabwe, Brasilíu....

Ég held með góðri trú að íslensk pólítík sé búin að mynda ákveðna múgsefjun á landsmenn, landsmenn allir eru orðnir mótfallnir evrunni og ESB ... afþvíbaraþaðersvoleiðis!

Ágætu Krafsmenn,
Vöknum nú upp við vondan draum, hættum þessari afturhaldsdýrkun - lítum í framtíðina, hættum að kvarta og vera svona þrjósk.

Göngum í ESB - fáum hæfa menn til þess að stjórna efnahagi - lifum við 4% stýrivexti og verðbólgu - þar sem 5% er talið vera "hættulegt".

Krónan er ónýtur gjaldmiðill.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 11:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Sjónarmið þitt Haukur er akkúrat það sem þeir vilja,
Skrýtið að bretland sé illa statt líka?
Ekki er evra þar, ekki evra hér.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 22. Nov 2008 11:31 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
gstuning wrote:
Sjónarmið þitt Haukur er akkúrat það sem þeir vilja,
Skrýtið að bretland sé illa statt líka?
Ekki er evra þar, ekki evra hér.

Vó, nú datt ég gjörsamlega út.... þeir hverjir? :)

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 94, 95, 96, 97, 98, 99, 100 ... 246  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 77 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group