siggik1 wrote:
samkvæmt haarde er þetta varasjóður, verður ekki notaður í björgunar aðgerðir ..
Quote:
Ennfremur segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins:
Fjármunirnir sem fást fyrir tilstilli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verða notaðir til að styrkja krónuna og verður hún sett á flot um leið og stuðningur við hana verður talinn nægilegur til þess. Þess er að vænta að gjaldeyrisviðskipti færist þá fljótlega í eðlilegt horf og milliríkjaviðskipti fari að ganga hnökralaust fyrir sig. Ríkisstjórn Íslands fagnar niðurstöðu stjórnar sjóðsins.
Quote:
Í fréttatilkynningu IMF (IMF Executive Board Approves US$2.1 Billion Stand-By Arrangement for Iceland, Press Release No.08/296, November 19, 2008) segir m.a.:
„Iceland’s economic program envisages that the Fund’s Stand-By Arrangement will fill about 42 percent of the country’s 2008-2010 financing gap. The remainder will be met by official bilateral creditors.”
Hugtakið „financing gap” (fjármögnunarþörf) vísar hér til greiðsluskuldbindinga Íslands umfram eigið afla- og ráðstöfunarfé á tímabilinu 2008-2010.
Í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins í dag segir hins vegar:
„Fjármunirnir sem fást fyrir tilstilli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verða notaðir til að styrkja krónuna og verður hún sett á flot um leið og stuðningur við hana verður talinn nægilegur til þess.”
Með orðalagi IMF hefði fyrri hluti setningarinnar verið sem hér segir:
„Fjármunirnir sem fást fyrir tilstilli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verða notaðir til að mæta 42% af fjármögnunarþörf Íslands á tímabilinu 2008-2010.”
Að styrkja krónuna er eitt – að fjármagna greiðsluhalla Íslands er annað.
Eitthvað eru þetta misvísandi skilaboð.
En ef það á að nota nokkur hundruð milljarða af lánsfénu í að lappa upp á krónuna þá getum við byrjað að pakka niður...
Það yrði hrikalegt ef að þau mistök yrðu gerð að ausa erlendu lánsfé í að styrkja krónuna.
Það verður einfaldlega að leyfa henni að falla fyrst um sinn.
Það er skárra en að sitja kannski uppi með verðlitla krónu og haug af erlendum skuldum. Við skulum vona að þau mistök verði ekki gerð.
En því miður þá býst maður við hverju sem er af núverandi ráðamönnum.
Hér er síðan frétt sem ég rakst á:
Quote:
Poul Thomsen, aðstoðarforstjóri Evrópudeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), segir að flot krónunnar gæti skapað öldu af gjaldþrotum fyrirtækja og heimila, það er þeirra sem eru með mikið af lánum í erlendum myntum.
Þetta kom fram á símafundi Thomsen með íslenskum fréttamönnum í dag. Thomsen segir að til lengri tíma litið muni krónan ná stöðugleika í kringum núverandi gengi Seðlabankans eða að evran muni kosta um 177 krónur þegar fram í sækir.
Af öðrum punktum sem fram komu á fundinum má nefna að lántökukostnaður íslenska ríkisins vegna 2,1 milljarða dollara lánsins frá IMF er rúmlega fjögur prósent af upphæðinni eða rúmlega 11 milljarðar króna.
Thomsen neitaði því að frestun á afgreiðslu lánsins hjá IMF væri vegna andstöðu Breta og Hollendinga. Það væri misskilningur. Frestunin væri einfaldlega til komin vegna þess að heildarpakki hefði ekki fyrir, það er ekki hafði tekist að ná saman þeirri lágmarksupphæð sem þurfi (5 milljörðum dollara). „Við gátum ekki farið af stað með áætlun okkar fyrir þetta lá ljóst fyrir," segir Thomsen.
Hvað varðar stýrivextina segir Thomsen að því fyrr sem stöðugleiki komist á með gengi krónunnar því fyrr muni verða hægt að lækka stýrivextina.
Aðspurður um þá óvissu sem er í spá IMF hvað varðar framtíðina í fjármálalífi landsins segir Thomsen að enn sé engin efnahagsreikningur til staðar fyrir nýju bankana og slíkt geri mjög erfitt að spá fyrir um framvinduna.
Þarna er maður frá IMF að segja að stöðugleiki náist við gengið EUR=177 ISK.
Þó að krónan eigi líklegast eftir að hrynja þegar hún verður sett á flot þá skulum við samt vona að stöðugleiki náist við eitthvað sterkara gengi en evran á 177 íslenkar krónur, hvenær svo sem þessi stöðugleiki á að nást...