Bjarki wrote:
Talað er um að þessi hjálp til þeirra sem spenntu bogann of hátt í bílakaupum sé sú sem muni kosta ríkið mest af þeim hjálparaðgerðum sem nú hafa verið kynntar!
Myndast núna ekki svigrúm fyrir fjársterka aðila til þess að kaupa bíla á Íslandi á brunaútsölu, flytja þá út og fá toll og vsk endurgreiddan skv. því sem sett verður upp.
Selja bílinn úti, komast yfir verðmætan gjaldeyri í fyrirhuguðum gjaldeyrishöftum á næstu misserum. Selja svo umræddan gjaldeyri á svarta markaðinum sem nú virðist vera ört stækkandi ef marka má aukinn fjölda auglýsinga í blöðum og á netinu.
Svo er líka spurning hvernig fólk með yfirveðsetta bíla og mögulega með lánið í vanskilum á að fara að því að senda þá úr landi. Það kostar að senda bílinn úr landi, skráning erlendis kostar, skoðunar og annað tilfallandi. Munu lánafyrirtæki samþykkja að veðsettir bílar verði sendir úr landi. Það þarf t.d. að fá leyfi frá lánafyrirtæki áður en gefið er út grænt kort á veðsetta bíla....
Væri ekki betra að yfirfara útflutningsferli bíla og gera það hnökralaust ef á því eru vankantar. Fólk getur þá flutt út sína dýru óseljanlegu bíla en þó án þess að fá til baka áður greidd gjöld til ríkissjóðs. Svo lánar ríkið umræddum einstaklingum fyrir tapinu, á hagstæðum kjörum, á miður gáfulegum bílakaupum. Það lán mætti svo frysta í eitt ár eða tengja það við tímabundna "lánskjaravísitölu" og greiða af því frá fyrsta degi, allt eftir stöðu fólks.
Þannig eru menn gerðir ábyrgir fyrir gjörðum sínum en hjálpað á sanngjarnan hátt m.t.t. til heildarinnar þ.e. allra hinna. Það er það seinasta sem ríkissjóður þarf á að halda er að dæla út peningum.
Neyðin mun valda því að bílar verði fluttir út þegar þeir ekki seljast á frosnum bílamarkaði á Íslandi.
Allt of framúrstefnulegt fyrir draugana í Þinginu, gæti bara virkað
En ég held að Heilagri Jóhönnu þyki nú bara í lagi að fólkið með fínu dýru bílana verði komið í öreigahópinn eftir 1-3 ár.
ps. er eitthvað að frétta af endurgreiðslufrumvarpinu?