Ég get allavega mælt með Dell, ég er á annari þannig vélinni og á enn gömlu(inspiron 8600, stækkaði ram í 2 gíg), hún er bara orðin sjónvarpsvél og ekkert að henni (Nema jú smá rauð lína á skjánum eftir að ég misti hana í gólfið).
Sú vél er núna sennilega 6 ára, og er vel brúkleg í marga vinnu og að sjálfsögðu til að spila tónlsit og horfa á video.
Ég hef reyndar verið að nota þessar vélar mikið í hljóðvinnslu, kvikmyndavinnslu og grafiska hönnun. og jú einhverjir leikir líka
Svo fékk ég mér núna nýlega (Latitude 830D, stækkaði ram í 4 gíg) og er rosalega sáttur við vinnsluna í henni, Ég hef á þessum 6 árum aldrei farið með tölvurnar mínar í viðgerð og meira að seigja batterýið heldur enn klukkutíma hleðslu á gömlu vélinni þó hún hafi verið síðusta árið alltaf í sambandi.
Eitt samt sem þú skalt passa þig á, ef hún á að nýtast þér í hljóðvinnslu þá eru firewire kortin sem dell nota léleg, þau afkasta ekki þessu gagnamagni sem hljóðvinnsla þarf fyrir utaná liggjandi hljóðkort, og er ég að láta EJS kanna lausnir á því vandamáli fyrir mig.
Alalvega Dell eru góðar græjur en ég hef reyndar bara reynslu á 300k plús vélum frá þeim, verð fyrir kreppu
