Minnsta mál, það ættu að vera heilar tvær skrúfur sem að halda mælaborðinu á sínum stað en þær eru "uppi" eða efst. Svo þarft þú líklegast að taka stýrið úr bílnum til þess að ná mælaborðinu síðan úr og þá þarftu að passa þig á því að taka rafgeyminn úr sambandi áður en þú gerir það svo að þú fáir ekki airbag ljósið í mælaborðið þegar að þú kveikir næst á bílnum.
En til þess að nálgast perurnar þá þarftu annaðhvort að taka bakið af mælaborðinu eða þá að þú sérð strax neðst á mælaborðinu hvort að þú getir skrúfað perurnar úr þar án þess að taka bakið af.
Perurnar færðu ef ég man rétt einungis í umboðinu og ættu þær ekki að kosta mikið og vera til hjá þeim.
Það eina sem ég er ekki viss er hvernig stýrið er tekið úr bílnum hjá þér þar sem að það er væntanlega með airbag en eftir á að hyggja þá held ég að þú þurfir ekki að taka stýrið úr, bara draga stýrið alveg út og niður og þá ætti þetta að vera barnaleikur
