Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bebecar » Thu 06. Nov 2008 12:40

gstuning wrote:Invar þú nefnir ekki aukið samstarf með Noregi,
sem er augljóslega mál ef það er til hagsmuna Noregs að við séum ekki í ESB

Það er samt meira painið hvað menn eru að koma seint með fregnir frá ríkinu eins og er.

Aukið samstarf með Noregi er hiklaust besti kosturinn.

En svo finnst mér nú alveg farið að verða mál að brýna klærnar aðeins. Það er ýmislegt hægt að gera t.d. eins og hóta úrsögn úr Nató á grundvelli þess að félagar okkur þar hafi skaðað okkur (Bretland og Holland (vil þó undirstrika að ég sé sammála því að við eigum að greiða til jafns úr sjóðum okkar fyrir innistæður í Hollandi, Bretlandi og á Íslandi) og þá sérstaklega Bretar sem hefðu alveg getað brugðist við á annan hátt). Í rauninni, miðað við meðferð Breta, þá sé ég ekki hvernig Íslandi er stætt á því að vera í Nató.

Bæði Svíþjóð og Finnland eru hlutlaus lönd t.d. og það mætti leita eftir auknu samstarfi þar mögulega.

Þá eru ótalin tækifæri á meðal smáþjóða en þar eigum við heima og ættum auðvitað ekki að vera spila okkur stór út í heimi.

Til Lilju: Það er engin þversögn því eins og staðan er í dag þá þarf ESB ekki að gefa eitt eða neitt eftir til Íslands, hvorki Icesave né aðrar kríteríur.

Hvernig endar þetta? Hmmm... annaðhvort með frelsi eða helsi.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby ValliFudd » Thu 06. Nov 2008 13:03

einarsss wrote:skemmtilegar head lines á mbl núna

"IMF-beiðni frestað"

"Bretar lána 800 milljónir punda vegna Icesave"

"Spá 40% lækkun íbúðaverðs"

"Spá 10% atvinnuleysi"

Ohh.. ég gerðist svo bjartsýnn að halda að VIÐ hefðum beðið um þennan frest til að hugsa þetta aðeins betur... En ekki var það svo gott.. :x
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Svezel » Thu 06. Nov 2008 15:12

Misvísandi fréttir http://m5.is/?gluggi=frett&id=64310

Sá góðan bol hjá dogma í dag :lol:
Image
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby ValliFudd » Thu 06. Nov 2008 15:41

Hvað segja menn um paypal og verslun í útlandi núna? Skila færslur mastercard/visa sér til paypal?

Vantar nefninlega kerti í toyotu..

4000+ stykkið hér heima

17,49 pund buy it now ebay.. (Bosch dýrara stuffið)
9,95 í sendingu
206,4228 gengi hjá Mastercard

5664 kr. fyrir 4 stk. í uk..
1416 kr. stykkið..

Getur varla verið að það kosti 2500-3000 kall að flytja hvert þeirra hingað :lol:

Djöfull eru fyrirtæki að misnota okkur þessa dagana...
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby arnibjorn » Thu 06. Nov 2008 16:04

ValliFudd wrote:Hvað segja menn um paypal og verslun í útlandi núna? Skila færslur mastercard/visa sér til paypal?

Vantar nefninlega kerti í toyotu..

4000+ stykkið hér heima

17,49 pund buy it now ebay.. (Bosch dýrara stuffið)
9,95 í sendingu
206,4228 gengi hjá Mastercard

5664 kr. fyrir 4 stk. í uk..
1416 kr. stykkið..

Getur varla verið að það kosti 2500-3000 kall að flytja hvert þeirra hingað :lol:

Djöfull eru fyrirtæki að misnota okkur þessa dagana...

Ég var að panta dót í usa með paypal og það virtist alveg ganga :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Einarsss » Thu 06. Nov 2008 16:11

arnibjorn wrote:

túrbó :?: 8)
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby arnibjorn » Thu 06. Nov 2008 16:12

einarsss wrote:
arnibjorn wrote:
ValliFudd wrote:Hvað segja menn um paypal og verslun í útlandi núna? Skila færslur mastercard/visa sér til paypal?

Vantar nefninlega kerti í toyotu..

4000+ stykkið hér heima

17,49 pund buy it now ebay.. (Bosch dýrara stuffið)
9,95 í sendingu
206,4228 gengi hjá Mastercard

5664 kr. fyrir 4 stk. í uk..
1416 kr. stykkið..

Getur varla verið að það kosti 2500-3000 kall að flytja hvert þeirra hingað :lol:

Djöfull eru fyrirtæki að misnota okkur þessa dagana...

Ég var að panta dót í usa með paypal og það virtist alveg ganga :)

túrbó :?: 8)

Skvass spaði 8) :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Axel Jóhann » Thu 06. Nov 2008 16:33

ValliFudd wrote:Hvað segja menn um paypal og verslun í útlandi núna? Skila færslur mastercard/visa sér til paypal?

Vantar nefninlega kerti í toyotu..

4000+ stykkið hér heima

17,49 pund buy it now ebay.. (Bosch dýrara stuffið)
9,95 í sendingu
206,4228 gengi hjá Mastercard

5664 kr. fyrir 4 stk. í uk..
1416 kr. stykkið..

Getur varla verið að það kosti 2500-3000 kall að flytja hvert þeirra hingað :lol:

Djöfull eru fyrirtæki að misnota okkur þessa dagana...

Valli, ég ætti nú að geta reddað þér þessum kertum ódýrari en 4000k stk. Er þetta í Yaris? :lol:
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205

E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby Thrullerinn » Fri 07. Nov 2008 08:52

bebecar wrote:
...

Fyrst og fremst þá er líklegt að eina leiðin til að losna undan Icesave sé sú að greiða til jafns úr ábyrgðarsjóði innistæða til breskra, hollenskra og íslenskra reikningseigenda. Það er í sjálfu sér mjög eðlileg krafa en kæmi sér afar illa fyrir þá Íslendinga sem minnst bera ábyrgð á ástandinu - fólkið sem hefur sparað undanfarin ár, aldraðir foreldrar og annað skynsamt fólk sem man tímana tvenna. Þetta myndi þýða að ekki verður staðið við innistæðutryggingar á Íslandi, nema upp að því marki sem hægt er að greiða jafnt út til allra sem eiga innistæður (innanlands sem utanlands). Um er að ræða líklega milljón manns og það ætti að vera hægt að reikna út hvað hver fengi svona sirka. Ef þetta er raunin þá liggur beint við að gera upptækar allar eignir þeirra sem komu að þessum fyrirtækjum sem nú eru gjaldþrota því þar með væri eignaupptakan orðin almenn og yrði að ganga jafnt yfir alla. Sú upptaka yrði svo notuð til að auka útborganir á innistæðum eða að innistæður myndu bara greiðast að hluta (eins og lög kveða á um) en upptakan yrði gefin út sem hlutabréf í uppteknu eignunum í réttu hlutfalli við tapaðar eignir íslendinga eingöngu (þetta ætti að vera fært en þessi leið var farinn einhversstaðar - man ekki hvar).
...

Ingvar, frábær póstur vægast sagt!

Var að spá hvernig hver hugmyndin er bakvið allir? eru þetta starfsmenn
fyrirtækjanna sem komu okkur í þessi vandræði ásamt viðskiptavinum?

Er þessi lausn ekki úr myndinni núna, hafandi það bakvið eyrað að nú eru
vinir okkur búnir að lána okkur 800 m punda til þess að greiða innistæðu-
eigindum sem þeir ætla síðan að rukka okkur um. En skv. reglum þá
eigum við ekki að ábyrgjast innistæðurnar, þeim er ekki stætt á því.

Eru dæmi um þetta í iðnvæddu ríki?
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bebecar » Fri 07. Nov 2008 09:24

Thrullerinn wrote:

Eigna upptaka allra gæti orðið ansi víðtæk. Það gæti innifalið fólk sem hefur átt almenn innlán, peningabréf, lífeyrissjóðssréttindi eða náð í raun yfir alla peninga í hagkerfinu. Það er svo misjafnt hve langt þarf að ganga. Það væri jafnvel hægt að afskrifa þá alla fyrst svona er komið og byrja nýtt hagkerfi sem nýtir bara aðra gjaldmiðla eins og Kosovo t.d. (en þetta er sko heldur betur drastískt!!!)

Aðal atriðið er samt að okkur er ekki stætt á því að vernda innistæður Íslendinga að fullu en útlendinga að minna leiti. Þetta snýst því um að borga Icesave tilbaka að fullu, eða draga til baka ábyrgðirnar á íslenskum reikningum og borga svo öllum út jafnt, líka þeim sem áttu í Icesave og þetta þýðir að fólk heima myndi ekki fá nema einhverja hundrað þúsund kalla fyrir inneignirnar sínar.

Heima við, eftir þetta mætti svo fara í sérstakar aðgerðir til að vinna á þessu óréttlæti og yrði þá eignaupptaka þeirra sem stofnuðu til þessara skulda það mikilvægasta. En jafnvel mætti gera upptæk öll auðæfi yfir ákveðnu marki. Þeim mætti svo dreifa á milli þeirra sem töpuðu inneignum lífeyrissjóðum o.s.frv. með einskonar hlutabréfum í hlutfalli við tapaðar eignir, t.d. í þeim eignum sem eru yfirteknar af ríkinu, fólkið myndi þá í raun eiga hlutabréf beint í því sem eftir er.

Þetta er mjög sósíalísk aðgerð auðvitað. En "desperate times call for desperate measures!" Þetta er kallað expropriation, en það eru til fleiri tæknilegar útfærslur á þessu eins og eminent domain en þar fást bætur fyrir það sem er tekið (ríkið þvingar þig til að selja).

Þetta hefur verið gert á mismunandi stigum víða. Kannski einfaldast að nefna Hugo Chávez og Evo Morales sem líklega eru aðal kallarnir í þessu.

Þetta eru svakalegar ráðstafanir en geta þegar allt fer á versta veg verið nauðsynlegar. Þetta snýst um hvort að við þrælbindum okkur til þess að borga erlendum lánadrottnum eða segjum nei, nóg komið, þeir verða að bera ábyrgðina á því að hafa lánað kæruleysislega og við munum ekki láta það viðgangast að láta hneppa okkur í ánauð.

Þetta er svo líklega til marks um breytta tíma að láta sér detta svona í hug - maður er nú einu sinni frekar frjálslyndur og hefur alltaf verið hægra megin við miðjuna :lol:

Mér finnst þetta ekki snúast um hægri og vinstri hinsvegar eða flokkadrætti. Þetta snýst um réttlæti.

Kannski hjálpar þessi útskýring...

http://en.wikipedia.org/wiki/Expropriation

Þessi ræða Davíðs er líka áhugaverð... http://t24.is/adgerd.php?adgerd=greinar_vidhengi_download&id=43&ending=.pdf
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby ValliFudd » Fri 07. Nov 2008 13:50

Hvernig í ósköpunum ætla menn að leysa úr þessarri flækju ef enginn talar við neinn, allir í einhverju leynimakki útí horni og enginn veit neitt.. Alltaf minnkar og minnkar þessi litla trú sem maður hafði á þessum vitleysingum.. Enn ein sönunin..

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item235697/

Pólska ríkisstjórnin hefur samþykkt að lána Íslandi 200 milljónir Bandaríkjadala, eða tæpa 25 milljarða króna.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagðist eftir ríkisstjórnarfund í morgun ekkert kannast við það.

Fjármálaráðherra sagði við sama tækifæri að hann vissi ekkert um lánið. Hann hefði lesið um það í Mogganum. Þegar fréttastofa hafði samband við pólska fjármálaráðuneytið urðu starfsmenn þess líka hissa, ekki á láninu, heldur viðbrögðum ráðherranna.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Thrullerinn » Fri 07. Nov 2008 14:01

ValliFudd wrote:Hvernig í ósköpunum ætla menn að leysa úr þessarri flækju ef enginn talar við neinn, allir í einhverju leynimakki útí horni og enginn veit neitt.. Alltaf minnkar og minnkar þessi litla trú sem maður hafði á þessum vitleysingum.. Enn ein sönunin..

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item235697/

Pólska ríkisstjórnin hefur samþykkt að lána Íslandi 200 milljónir Bandaríkjadala, eða tæpa 25 milljarða króna.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagðist eftir ríkisstjórnarfund í morgun ekkert kannast við það.

Fjármálaráðherra sagði við sama tækifæri að hann vissi ekkert um lánið. Hann hefði lesið um það í Mogganum. Þegar fréttastofa hafði samband við pólska fjármálaráðuneytið urðu starfsmenn þess líka hissa, ekki á láninu, heldur viðbrögðum ráðherranna.

Þetta er svo mikið FAIL :lol:
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby Zyklus » Fri 07. Nov 2008 14:19

http://visir.is/article/20081107/VIDSKIPTI06/848366367/-1

Eru eintómir trúðar við völd í þessu landi? Það virðist enginn vita neitt, einn segir þetta, annar segir hitt. Trúverðugleikinn er undir frostmarki.
Ekki er útlitið bjart en með svona fólk við völd þá getur vont bara versnað.

Kæmi mér ekki á óvart að ástæða þess að IMF hefur frestað afgreiðslu lánveitingunnar tvisvar sé sú að þar hafi menn einfaldlega ekki neina trú á bæði stjórn landsins sem og Seðlabanka Íslands. Og ekki get ég áfellst þá...
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby bimmer » Fri 07. Nov 2008 14:19

Greinilegt að svíarnir eru að græja og gera - Geir er ekkert með.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Fri 07. Nov 2008 14:26

Þetta virðist rekið eins og lager án verkstjóra.. Þessir anskotans feluleikir verða að hætta.. Það er allt leyndó og enginn má vita, og þegar hlutir fréttast út þykjast þeir aldrei vita neitt. En ef hann vissi virkilega ekki af þessu er hann alls enginn verkstjóri/forsætisráðherra.. Á hann ekki að vera einhvurs konar verkstjóri annars?

Það hefur bara sýnt sig og sannað undanfarna mánuði að þessir menn virðist ekki vita neitt um það sem þeir eru að gera. Það vantar allt sem heitir agi þangað. Enginn ber ábyrgð á neinu sem gerist og enginn veit neitt um neitt. wtf?

EDIT:
http://www.mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/20954/
Vá hvað hann er eitthvað aulalegur þarna.. "döö... ég hef þá bara misst af því" og finnst þetta bara fyndið..
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests