bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 18:42

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Sjaldnar í skoðun
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 15:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Hvað segja menn um þetta? Gott eða slæmt?

http://t24.is/?gluggi=grein&tegund=frett&id=4125

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 15:39 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sat 09. Dec 2006 22:29
Posts: 307
Location: Reykjavík
Slæmt, það eru svooo margir sem hugsa svo illa um bílana sína og er skoðun það eina sem skikkar suma að gera við þá :?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 15:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Minnkar álag á verkstæðum í það minnsta, þetta er í raun slæm hugmynd..

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 16:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Berteh wrote:
Slæmt, það eru svooo margir sem hugsa svo illa um bílana sína og er skoðun það eina sem skikkar suma að gera við þá :?


x2

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 16:20 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Gott fyrir E30 eigendur :lol:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 16:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Sammála því, ekki góð hugmynd. Það eru þegar margir sem trassa að fara með bílana sína í skoðun í langan tíma, og sumir komast upp með í rauninni að fara með þá annað hvort ár ef þeir fara nógu seint og það nær yfir áramót.

Og á meðalbílnum er yfirleitt eitthvað sem þarf að fixa, hvort sem það sé smávægilegt eða ekki, og þetta í raun kemur í veg fyrir að fólk sé að keyra um á biluðum eða óöruggum bílum.

Fólk mun örugglega trassa t.d. bremsuviðhald með þessari reglugerð, og þá er spurning hvort það muni eitthvað hafa áhrif á tjóntíðnina.

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 16:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Mömmu var "sleppt í gegn" á handónýtum dekkjum og fl.. Heimskulegt.. Ég fer með bílinn í skoðun til að vita hvort eitthvað sé að honum. Þeir sjá allskonar hluti sem ég hef ekki hugmynd um og þetta er staður sem ég treysti til þess að láta mig vita af svoleiðis hlutum svo ég drepi mig ekki í umferðinni.. Eða aðrir drepi mig. Það þarf að vera hægt að treysta því að bíllinn á eftir manni sé með bremsur..

En svo sér maður jú þessa lúða í umferðinni með 04 miða o.s.frv... Og ekki líður mér vel nálægt svoleiðis bíl á 90 á Sæbraut.. Anything can happen...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 17:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
gott fyrir ábyrga bíleigendur
ekki nema þegar þeir óábyrgu valda slysum bitna á okkur.

Ef skoðunarmenn fara eftir reglum og horfa ekki framhjá hlutum og menn fá sekt ef þeir fara ekki í skoðun á réttum tíma þá held ég að þetta sé bara gott.
Ég er á bíl með endurskoðun 11 síðan í fyrra og það er ekkert vesen ennþá.
Bíllinn hefur ekki fengið gilda skoðun í nokkur ár.
Þetta get ég ekki gert m.v. nýjar reglur öðruvísi en að fá sekt.

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 18:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Þetta er bæði og :roll:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 21:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Verður til þess að fleiri bílum er fargað... hægt að líta á það sem góðan og slæman hlut.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 23:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
Algjör steypa!!!
Þar sem ég vinn við þjónustuskoðanir og viðgerðir á bílum, get ég sagt ykkur að svo virðist vera, að ekkert sé sárara fyrir meðalíslendinginn en að eyða peningum í viðhald á bílum!!!

Einnig er sú gerð fólks sem að skilur bara engan veginn að það sé ekki nóg að setja bara bensín á bílinn og keyra svo!

Þetta er oft fólk sem að hefur átt og "rekið" bíla áratugum saman, en verður alltaf jafn hissa þegar að bremsuklossar klárast t.d.

Bara um kvöldmatarleytið í dag var ég að skoða Aygo dós fyrir fimmtuga konu sem ég þekki.

"byrjaði að koma eitthvað hljóð frá bremsunum um daginn....."

Klossarnir voru svo búnir að einn klossinn hafði yfirgefið bifreiðina, dælan rústað disknum, og diskurinn rústað dælunni...
Einnig hafði glóheitt málmsvarfið fokið með hliðinni á bílnum, og brennt sig inní lakkið á honum! Þetta er ekki eitthvað sem að gerist á einum degi!

Þessi bíll er árgerð 2006 og þarf ekki að fara í skoðun fyrr en á næsta ári!

Fólki veitir ekkert af ársskoðun! Annars verða ansi mörg vafasöm ökutæki á götunum :?

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Nov 2008 23:08 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
IvanAnders wrote:
Algjör steypa!!!
Þar sem ég vinn við þjónustuskoðanir og viðgerðir á bílum, get ég sagt ykkur að svo virðist vera, að ekkert sé sárara fyrir meðalíslendinginn en að eyða peningum í viðhald á bílum!!!

Einnig er sú gerð fólks sem að skilur bara engan veginn að það sé ekki nóg að setja bara bensín á bílinn og keyra svo!

Þetta er oft fólk sem að hefur átt og "rekið" bíla áratugum saman, en verður alltaf jafn hissa þegar að bremsuklossar klárast t.d.

Bara um kvöldmatarleytið í dag var ég að skoða Aygo dós fyrir fimmtuga konu sem ég þekki.

"byrjaði að koma eitthvað hljóð frá bremsunum um daginn....."

Klossarnir voru svo búnir að einn klossinn hafði yfirgefið bifreiðina, dælan rústað disknum, og diskurinn rústað dælunni...
Einnig hafði glóheitt málmsvarfið fokið með hliðinni á bílnum, og brennt sig inní lakkið á honum! Þetta er ekki eitthvað sem að gerist á einum degi!

Þessi bíll er árgerð 2006 og þarf ekki að fara í skoðun fyrr en á næsta ári!

Fólki veitir ekkert af ársskoðun! Annars verða ansi mörg vafasöm ökutæki á götunum :?


Shit!! :shock:

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. Nov 2008 09:35 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sat 09. Dec 2006 22:29
Posts: 307
Location: Reykjavík
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/1 ... _okutaekj/


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. Nov 2008 12:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Hvað segiði, hvenær þarf maður að tussast með bílinn í skoðun, endar á 7 :lol:

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. Nov 2008 14:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Geirinn wrote:
Hvað segiði, hvenær þarf maður að tussast með bílinn í skoðun, endar á 7 :lol:

úbbs.. 15 þús króna sekt :lol:

2 mánuðir framyfir = 15 þús í sekt.. 50% afsl ef borgað er innan viss tíma.. tók gildi 1. okt :)

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item234998/


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 8 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group