Mér finnst ekkert að því að mótmæla þegar það er gert á manns hlut ... þetta snýst ekkert um bílalán. Þetta snýst um að einhver hópur fólks sinnti ekki eftirliti, stjórnin vissi hvað gæti skeð, annar stjórnarflokkurinn kom þessu af stað, bankarnir fór langt út fyrir stærð sem hægt væri að kalla "eðlilega"... svo kemur alheimskreppa og allt fer í kaldakol ... og hlutirnir fara eins og enginn gat ímyndað sér.
Allt fer til fjandans á íslandi... kerfið hrynur
Og hver á að borga það?
Ég og börnin mín og jafnvel barnabörn ... borgum fyrir mistök og græðgi annara.
Mér finnst ekki rétt að fólkið sem kom okkur í þessi vandræði fái að stjórna því hvernig við eigum að redda okkur úr þessu.
Ef lýðurinn gerir ekki neitt þá mun ekkert breytast á íslandi... ef það er einhvern tíman ástæða til að mótmæla þá er það núna.
btw ... hefur engum fundist skrítið hvað fjölmiðlar gera lítið úr þessum mótmælum?
minnir að á mbl og visir var talað um að um 1000 manns hafi mætt
hérna eru myndir sem ég fann á netinu
tekið héðan
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/695931/
nokkuð áhugaverður lestur