Að selja bíl úr landi - Frumvarpið samþykkt!

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Eggert » Fri 24. Oct 2008 12:15

Morgunkorn Glitnis wrote:Bílaútflutningur gæti skilað þjóðarbúinu umtalsverðum og kærkomnum gjaldeyristekjum á næstu mánuðum. Til stendur að breyta lögum um opinber gjöld af bifreiðum á þann hátt að þau fáist endurgreidd að verulegu eða öllu leyti við útflutning notaðrar bifreiðar. Viðskiptablaðið greinir þannig í dag frá því að frumvarp um slíkar lagabreytingar verði líklega lagt fyrir ríkisstjórnina í dag. Þó að markaður fyrir notaðar bifreiðar hafi laskast erlendis vegna framvindu efnahagsmála þar undanfarið er sá markaður eflaust í betra standi en hérlendur bifreiðamarkaður um þessar mundir.

Á vef Bílgreinasambandsins kemur fram að u.þ.b. 8 ¿ 10.000 notaðir bílar séu nú til sölu hér á landi, og að meðalverð á notuðum bílum sé í námunda við 2,5 milljónir króna. Þótt veruleg óvissa ríki um hve hátt verð muni fást fyrir þessa bíla erlendis og ljóst að aðeins mun hluti þeirra verða sendur úr landi má ætla að talsverðar gjaldeyristekjur myndu fást með þessu móti. Auk þess mun slík sala létta töluvert undir með heimilum sem eiga töluverða fjármuni bundna í bifreiðum á sölu hérlendis. Loks er gengi krónu afar hagstætt fyrir slík viðskipti í dag, sér í lagi með nýlega bíla sem keyptir voru þegar krónan stóð hvað sterkust á fyrri hluta síðasta árs. Má því ætla að efnahagslegur ávinningur af slíkum útflutningi geti verið töluverður. (JBB)



En já, mér finnst það alveg fáránlegt að bjóða uppá að borga þetta til baka. Er ekki fjandans nóg að selja bílinn fyrir €? Það er nóg annað sem hægt væri að eyða peningunum í.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby 200 » Tue 28. Oct 2008 20:22

ég get ekki skilið af hverju mönnum finnist fáránlegt að bjóða uppá þetta, þetta er klárlega hagur allra, lántaka/fjármögnunarfyrirtækis/ríkisins/kaupanda!.
200
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 21
Joined: Tue 02. Oct 2007 19:44

Postby íbbi_ » Tue 28. Oct 2008 20:36

það var borgað vask af bílunum þegar þeir voru fluttir inn til landsins, og því er bara eðlilegt að vaskurinn sé endurgreiddur þegar bíllin fer aftur úr landi
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Eggert » Tue 28. Oct 2008 20:47

íbbi_ wrote:það var borgað vask af bílunum þegar þeir voru fluttir inn til landsins, og því er bara eðlilegt að vaskurinn sé endurgreiddur þegar bíllin fer aftur úr landi


Hvað er samt eðlilegt við það? Þetta er eins og að fá endurgreitt eftir að bíómyndin er búin.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby gstuning » Tue 28. Oct 2008 21:01

Nei.

þegar þú flytur inn hlut þá borgast VSK, ef þú flytur hann aftur út þá færðu VSK endurgreitt.

Sama þegar fyrirtæki selja sín á milli, það er ekkert alltaf bætt VSK ofan á í hvert skipti heldur bara á enda kaupanda ef hann skilar aftur í búðina , fær hann ekki fullt greitt tilbaka? ekki bara verðið - vsk er endurgreitt.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby zazou » Tue 28. Oct 2008 21:45

Enda er VSK VirðiSauKi. Ef það hækkaði bíl í verði að flytja hann 20 sinnum inn og frá Íslandi, borga virðisaukann í hvert skipti þá væri þetta orðið svipað dæmi og Sterling.

Slakið á hrokanum og setjið upp reality gleraugu.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Steinark » Sat 22. Nov 2008 17:16

Eggert wrote:
íbbi_ wrote:það var borgað vask af bílunum þegar þeir voru fluttir inn til landsins, og því er bara eðlilegt að vaskurinn sé endurgreiddur þegar bíllin fer aftur úr landi


Hvað er samt eðlilegt við það? Þetta er eins og að fá endurgreitt eftir að bíómyndin er búin.


þetta er líklegasta ein versta samlíking sem ég hef heyrt. Ég tel að það sé ekkert eðlilegra en að endurgreiða vsk við útflutning þegar búið er að greiða hann við innflutning.

Það væri gáfulegri umræða að ræða hvort ætti að greiða hann til fulls eða bara hluta til þar sem varan er ekki ný þegar hún er flutt út heldur hefur þessi bíll t.d. slitið götum og kostað landið peninga meðan hann er í notkun. En bifreiðagjöld t.d. ættu samt að hafa tekið þann kostnað að stórum hluta.
Image
BMW 318IS coupe e36 ´92 - Seldur
BMW 316i Compact ´99 - Seldur
BMW 318IA ´92 - Seldur
User avatar
Steinark
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 66
Joined: Thu 09. Feb 2006 19:48
Location: Ísland

Postby Eggert » Sat 22. Nov 2008 17:21

Steinark wrote:
Eggert wrote:
íbbi_ wrote:það var borgað vask af bílunum þegar þeir voru fluttir inn til landsins, og því er bara eðlilegt að vaskurinn sé endurgreiddur þegar bíllin fer aftur úr landi


Hvað er samt eðlilegt við það? Þetta er eins og að fá endurgreitt eftir að bíómyndin er búin.


þetta er líklegasta ein versta samlíking sem ég hef heyrt. Ég tel að það sé ekkert eðlilegra en að endurgreiða vsk við útflutning þegar búið er að greiða hann við innflutning.

Það væri gáfulegri umræða að ræða hvort ætti að greiða hann til fulls eða bara hluta til þar sem varan er ekki ný þegar hún er flutt út heldur hefur þessi bíll t.d. slitið götum og kostað landið peninga meðan hann er í notkun. En bifreiðagjöld t.d. ættu samt að hafa tekið þann kostnað að stórum hluta.


Ég skil alveg þetta hugtak virðisauki og ég sé afhverju þið viljið fá hann til baka.

En ég hlýt að meiga eiga mína skoðun á þessu máli, og mér finnst það bara ekki réttlátt að það sé verið að moka ofan í sökkvandi skip, með því að draga (að öllum líkindum) mikla fjármuni úr ríkiskassanum til að eyða í þetta og bjarga þeim sem tóku áhættu.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby JonHrafn » Sat 22. Nov 2008 20:48

JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby bimmer » Sat 22. Nov 2008 21:46

Eggert wrote:En ég hlýt að meiga eiga mína skoðun á þessu máli, og mér finnst það bara ekki réttlátt að það sé verið að moka ofan í sökkvandi skip, með því að draga (að öllum líkindum) mikla fjármuni úr ríkiskassanum til að eyða í þetta og bjarga þeim sem tóku áhættu.


Ekki gleyma því að við fáum dýrmætan gjaldeyri á skerið.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby finnbogi » Sun 23. Nov 2008 14:52

bimmer wrote:
Eggert wrote:En ég hlýt að meiga eiga mína skoðun á þessu máli, og mér finnst það bara ekki réttlátt að það sé verið að moka ofan í sökkvandi skip, með því að draga (að öllum líkindum) mikla fjármuni úr ríkiskassanum til að eyða í þetta og bjarga þeim sem tóku áhættu.


Ekki gleyma því að við fáum dýrmætan gjaldeyri á skerið.



sem er gott

og að skuldir í erlendum lánum minnkar gríðalega :wink:
Þórður Finnbogi
GSM:663-2524

BMW M5 E39 1999 veðlaus :D
BMW 316i E36 1999 kraftlaus
Image
finnbogi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2645
Joined: Mon 19. Apr 2004 02:07
Location: á M5 á hlið eða í læknis leik með systur þinni

Postby íbbi_ » Sun 23. Nov 2008 16:12

nei ætli það meiki ekki meira sens fyrir honum að allir bílabraskarar fari á hausinn frekar,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Eggert » Sun 23. Nov 2008 19:36

íbbi_ wrote:nei ætli það meiki ekki meira sens fyrir honum að allir bílabraskarar fari á hausinn frekar,


Heldur en að spandera tveim milljörðum úr ríkissjóð í þetta? Jebb, þar hefurðu rétt fyrir þér.

Ég væri til í að vita svart á hvítu muninn efnahagslega á því að fá gjaldeyrinn fyrir bílana til landsins, og svo ekki. Mun þetta muna almenna skattborgara það miklu að það sé þess virði að tapa tveim milljörðum úr ríkissjóð fyrir? Ég er ekkert að segja að það sé ekki þess virði, ég væri bara til í að hlusta á einhvern hagfræðing sem hefur vit á málinu gefa sína hlutlausu skoðun. En ekki ívar og gunna útí bæ sem hafa hagsmuna að gæta.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby íbbi_ » Sun 23. Nov 2008 20:00

er ég búinn að vera einhver talsmaður þessa stefnu?!?!? því síðast þegar ég vissi var ég ekkert á leiðini að senda bíla úr landi frekar en þú, ég er bara að reyna taka þátt í samræðunum hérna,

mér finnst bara fyndið hvað það hata allir menn sem braska með bíla, eins og það sé eitthvað öðruvísi en að versla með aðra hluti
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Eggert » Sun 23. Nov 2008 20:15

Ekkert persónulegt Ívar... ekki taka því þannig. Við getum alveg verið sammála um að vera ósammála.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests