Maður vonar bæði Bandaríkjamanna vegna og heimsins að repúblikanar nái ekki völdum í Hvíta húsinu.
Ef að að repúblikanar ná völdum þá þýðir það væntanlega áframhaldandi eyðilegging bandarísks efnahagslífs. Sagan hefur sýnt það að demókrötum er mun betur treystandi fyrir stjórn efnahagsmála en repúblikönum.
T.d. var bandaríska ríkið rekið með afgangi þegar Bush tók við af Clinton en núna er ríkið rekið með methalla og stefnir allt í að hann verðir yfir 1000 milljarðar dollara á næsta ári. Skuldir ríkisins hafa einnig stóraukist, svo mikið að sumir sérfræðingar tala um að AAA lánshæfismat BNA sé í hættu.
Það er því mjög mikilvægt að tekið verði til í ríkisbúskap Bandaríkjanna en repúblikönum er ekki treystandi til þess.
Og það er mjög mikilvægt að Bandaríkin nái að koma sínum efnahag í lag því að vandræði þar smitast um allan heiminn.
Eftirfarandi mynd segir sína sögu:
(Myndin sýnir þróun gengisvísitölu bandaríska dollarsins. Öfugt við íslensku gengisvísitöluna þá táknar hærri vísitala á þessari mynd sterkari dollar)
Einnig er að meðaltali ávöxtun hlutabréfa mun betri þegar demókratar ráða Hvíta húsinu, ríkisreksturinn ábyrgari o.s.frv...