bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 21:48

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 42 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sat 18. Oct 2008 14:43 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
gstuning wrote:
Mér hefur aldrei fundið neitt jafn fyndið og
"hafa efni á að borga af lánunum" þá er allt í lagi að borga lán,


Mér finnst bara ALLS ekkert að því að hafa lán ef menn geta greitt þau.
Efa það að margir hefðu efni á að kaupa sér húsnæði ef þeir fengu ekki lán (veit samt vel að þú varst ekki að tala um húsnæðislán, hljómaði bara eins og alhæfing hjá þér).

Ég hef t.d. nánast alltaf tekið lán þegar ég hef keypt mér bíla og stilli ég þá láninu þannig að ég geti auðveldlega greitt af því.
Finnst eins og sumir hérna tali þannig að bílalán séu nánast séríslenskt fyrirbæri.

Ég ætla bara að vona að ég hafi ekki komið þessari kreppu af stað með bílaláninu mínu og biðst afsökunar ef einhverjir eru með höfuðverk og þynnku af mínum völdum. Þetta var gott partý.

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 18. Oct 2008 16:26 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
ÉG held reyndar að verið sé að hengja bakara fyrir smið ef almenning er kennt um hvernig komið er. Það er vissulega einstaklingum sjálfum að kenna hvernig komið er fyrir þeim sjálfum við þessar aðstæður. Kapp er bet af forsjá og þeir sem fóru varlega munu koma mun betur út úr þessu en þeir sem voru með allt skuldsett í botn. En ég held að flestir viti og geri sér grein fyrir því að bílar og flatskjáir eru bara BROTABROT af erlendum skuldum þjóðarinnar og það eru ÞÆR sem eru að sliga þjóðfélagið.

Við vitum svo öll hverjir hafa stofnað til þeirra....

Þannig að það er náttúrulega ekki alveg rétt hjá Óskari að slá út frá sér á þennan hátt þó hann hafi svo sannarlega rétt fyrir sér að ástandið verði ekki beisið næstu árin.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 18. Oct 2008 17:05 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Geirinn wrote:
///M wrote:
Ísland á eftir að vera ömurlegt í mörg mörg ár... ég kíki kannski í heimsókn 2018! Þýðir ekkert að væla, svona er þetta bara. Þeir sem eru búnir að lifa hátt og ekki átt efni á því eru að draga alla með sér í ömurlegheit og þunglyndi.

Við erum að tala um stráka sem eru að bóna bíla eða vinna á bensínstöð með fleiri tuga miljóna í lán á bakinu... eðlilegt? nei... gengur þetta til lengdar? nei... komið að skuldardögum? JÁ. Hverjir þurfa að borga???

Það eru einhverjir bæði hérna á bmwkrafti og á l2c sem er að monta sig af "kreppu bílunum" sínum, margir hverjir sem eiga ekki krónu í draslinu og eru að monta sig af því.. sorry en ég verð að spryja hvað í andskotanum er að ykkur? var ykkur hennt í gólfið þegar þið voruð krakkar eða tróð einhver slönguni upp í sparigatið gegn ykkar vilja? Eruð þið í alvörunni að gera grín að stöðunni sem er kominn upp? Haldið þið að þetta verði fyndið þegar það er komið 70% verðbólga, já eða þegar ísland verður gjaldþrota og eitthvað annað land tekur við þrotabúinu.. eins og til dæmis rússa kannski? ætlið þið þá ennþá að brosa yfir vesældinni sem þið eruð búnin að taka þátt í?

Það sem fólk þarf að hafa í huga er að þú getur tapað vinnuni, life savings, pension funds og svo framvegis.... en það sem stendur uppúr ÞÚ TAPAR ALDREI SKULDUM!

Ég er klárlega með sæma í liði þegar ég horfi upp á ykkur aumingjana sem hafið eytt peningum sem þig ekki eigið. Til helvítis með ykkur :!: afi minn og amma, mamma, pabbi, ég, bræður mínir og systur erum að borga undir ykkur... Ég vona að karma taki ykkur í þurt rassgatið. Það er eitt að taka hóflegt lán til að kaupa hús, jafnvel til að kaupa drauma bílinn... en að skulda meira en þú nokkurntíman getur borgað... setjið þetta upp í excel... þetta gengur ekki upp.

Hart? já... þannig er heimur sem við búum í... það er ekkert gefins, það eru engin ókeypis RÖNN.


Vælið eins og þið getið, það er ekki að fara að hjálpa.


Það er gott að egóið er til staðar, auðvitað hefur fjölskyldan þín séð til þess að allt sé í lagi hér (og hún er eina fjölskyldan í plús).


Þú ert ekkert í alvörunni svona vitlaus er það?

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 18. Oct 2008 17:24 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56
Posts: 930
Spennandi tímar framundan.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 18. Oct 2008 17:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Það tóku víst nokkur hundruð manns þátt í þessu í dag http://www.nyirtimar.com/

http://visir.is/article/20081018/FRETTIR01/189932009/-1

Quote:
Talið er að nokkur hundruð manns hafi komið saman á Austurvelli klukkan þrjú í dag þar sem fram fóru mótmæli og þess var krafist að Davíð Oddssyni seðlabankastjóra yrði vikið frá störfum.

Það var hópur undir forystu Harðar Torfasonar, Kolfinnu Baldvinsdóttur, Dr. Gunna, Birgis Þórarinssonar og Andra Sigurðssonar sem efndi til mótmælanna. Í fréttatilkynningu frá hópnum, sem kallar sig Nýir tímar - Vertu þátttakandi, sagði að eina leiðin til að þjóðin héldi sjálfsvirðingu sinni nú væri að hún sameinaðist í fjölmennum mótmælum með ein skýr skilaboð til stjórnmálamanna. Þau væru að víkja bæri Davíð Oddssyni úr starfi seðlabankastjóra vegna mistaka hans.

Meðal þeirra sem tóku til máls voru Hörður Torfason, Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor og Þráinn Bertelsson rithöfundur. Sams konar mótmæli hafa verið boðuð eftir viku.


Vonandi fer almenningur að gera eitthvað í staðinn fyrir að beygja sig fram og vona að það sé smurning í grendinni.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 19. Oct 2008 09:35 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Maður er alveg fylgjandi því að seðlabankastjórum sé skipt úr fyrir einn sem er hæfur í starfið.

EN hinsvegar finnst mér afar ótrúverðugt af fólki að ætla að fara að gera Davíð að eina sökudólg ástandsins. Afhverju mótmælir fólk ekki fyrir utan hjá þeim sem settu landið á hausinn? Líklegast vegna þess að fólk ber svo mikla ábyrgð á þessu sjálft að það getur ekki horfst í augu við það að hafa kóað með þessu síðustu 5 ár.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 19. Oct 2008 10:05 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Maður er alveg fylgjandi því að seðlabankastjórum sé skipt úr fyrir einn sem er hæfur í starfið.

EN hinsvegar finnst mér afar ótrúverðugt af fólki að ætla að fara að gera Davíð að eina sökudólg ástandsins. Afhverju mótmælir fólk ekki fyrir utan hjá þeim sem settu landið á hausinn? Líklegast vegna þess að fólk ber svo mikla ábyrgð á þessu sjálft að það getur ekki horfst í augu við það að hafa kóað með þessu síðustu 5 ár.


Svooo sammála :lol:

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 19. Oct 2008 11:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Posts: 3209
Location: inn í bílnum þínum.
Ég nenni nú ekki að lesa allan þennan þráð en langaði að koma með eitt innskot.
ég fékk áðan sendan svona "verum glöð og knúsum hvort annað" Póst og ég er BRJÁLAÐUR eftir að hafa lesið hann.
Mig langar til að troða Action man kalli upp í rassgatið á honum og krossfesta hann sérstaklega vegna þess að hann er búinn að spila sig sem svaka tappa síðasliðin ár með allt á lánum.

_________________
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 19. Oct 2008 14:07 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
HPH wrote:
Ég nenni nú ekki að lesa allan þennan þráð en langaði að koma með eitt innskot.
ég fékk áðan sendan svona "verum glöð og knúsum hvort annað" Póst og ég er BRJÁLAÐUR eftir að hafa lesið hann.
Mig langar til að troða Action man kalli upp í rassgatið á honum og krossfesta hann sérstaklega vegna þess að hann er búinn að spila sig sem svaka tappa síðasliðin ár með allt á lánum.



Hvern ertu að tala um?? :shock:

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 19. Oct 2008 14:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Lindemann wrote:
HPH wrote:
Ég nenni nú ekki að lesa allan þennan þráð en langaði að koma með eitt innskot.
ég fékk áðan sendan svona "verum glöð og knúsum hvort annað" Póst og ég er BRJÁLAÐUR eftir að hafa lesið hann.
Mig langar til að troða Action man kalli upp í rassgatið á honum og krossfesta hann sérstaklega vegna þess að hann er búinn að spila sig sem svaka tappa síðasliðin ár með allt á lánum.



Hvern ertu að tala um?? :shock:


Ég var einmitt að pæla í því :shock: :lol:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 19. Oct 2008 14:19 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Einhver hérna búinn að lesa "confessions of an economic hitman" ?

E-h séð Zeigeist Addendum (sem er auðvitað eitthvað sem maður á að horfa á með fyrirvara, en það er margt gott þar).

T.d. með hvernig þessir svokölluðu Economic hitman's hafa farið um Suður Ameríku?

Passar mjög margt við Ísland í dag.

Gengisfelling gjaldmiðils
Massíf skuldsetning erlendis

IMF kemur til bjarganna og lánar okkur massíft - við skuldum þeim fáránlegar tölur.

Þeir krefjast þess að einkavæða svotil alltsaman, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, auðlindir etc etc etc...

Þessar massífu skuldir sliga, hvernig á að borga?

JÚ - Með auðlindum Íslands. Þetta gerðist á Jamaica, Írak, Íran, Guatemala, Ecuador.... allt lönd þar sem IMF kom (og/eða world bank).

http://www.democracynow.org/2004/11/9/c ... ic_hit_man

Corporations man.. :P


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 19. Oct 2008 14:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Jónas wrote:
Einhver hérna búinn að lesa "confessions of an economic hitman" ?

E-h séð Zeigeist Addendum (sem er auðvitað eitthvað sem maður á að horfa á með fyrirvara, en það er margt gott þar).

T.d. með hvernig þessir svokölluðu Economic hitman's hafa farið um Suður Ameríku?

Passar mjög margt við Ísland í dag.

Gengisfelling gjaldmiðils
Massíf skuldsetning erlendis

IMF kemur til bjarganna og lánar okkur massíft - við skuldum þeim fáránlegar tölur.

Þeir krefjast þess að einkavæða svotil alltsaman, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, auðlindir etc etc etc...

Þessar massífu skuldir sliga, hvernig á að borga?

JÚ - Með auðlindum Íslands. Þetta gerðist á Jamaica, Írak, Íran, Guatemala, Ecuador.... allt lönd þar sem IMF kom (og/eða world bank).

http://www.democracynow.org/2004/11/9/c ... ic_hit_man

Corporations man.. :P


Var einmitt að horfa á Zeitgeist Addendum, maður horfir á hana einmitt með svolitlum fyrirvara en mjög góð mynd.

IMF lítur ekkert sérstaklega heillandi út eftir að hafa horft á þessa mynd.

Seinni hluti myndarinnar er reyndar hundleiðinlegur.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 42 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group