bimmer wrote:
Lindemann wrote:
En ég trúi því samt að við eigum ekki að þurfa að búa við mikið atvinnuleysi í komandi framtíð..........auðvitað eitthvað meira, en helsta breytingin er að fólk þarf að sætta sig við eitthvað lægri laun og verður að taka þá vinnu sem býðst.
Því miður held ég að þetta sé rangt hjá þér.
Já, ég reyni að vera bjartsýnn en auðvitað er það rétt að það verður aukið atvinnuleysi. Ég vil bara enn trúa því að það verði ekki mjög mikið, allavega ekki nema eitthvað tímabundið.
Kannski fer kerfið aftur um 20 ár í tíma......landbúnaður, sjómennska og fleiri störf sem hafa smá saman verið að deyja út undanfarið held ég að gætu orðið stærri hluti af samfélaginu.
Það þarf ekkert endilega að vera slæmt, kennir manni bara í framtíðinni meira um hvað það er sem skiptir máli og hvað ekki.
Hitt er annað mál með peningana, sem er búið að koma eitthvað inná.
Þeir sem eru í nógu góðum málum til að geta átt auka pening til að leggja fyrir eiga hugsanlega ekki eftir að treysta bönkunum, hvað á maður að gera þá? Það er ekkert öruggt að geyma peninga unir koddanum hjá sér, þeir gætu verið verðlausir einn daginn.