bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 23:40

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 71 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Íslendingar eiga met í REDDINGUM :lol:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:32 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Alpina wrote:
Íslendingar eiga met í REDDINGUM :lol:


:lol: :lol: :lol: :lol: :lol:

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:32 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Stanky wrote:
Uhh.. geri mér alveg grein fyrir því að það gerir ekkert núna. En það eru t.d. næstu kosningar... og ég ætla amk ekki að kjósa D aftur, kemur ekki til greina.

Jújú, þeir eru að reyna að "redd'issu".... en það er spurning hvort það hafi verið farin rétt leið.

Þoli ekki þetta "Iss, þetta reddast" syndrome.


Hvað ertu að meina? Ertu að meina að við hefðum átt að hafa annan flokk við stjórn og þá hefði þetta aldrei gerst?

Hvað átti að gera ef þetta er ekki rétt leið? Það gagnast lítið að gagnrýna endalaust en koma aldrei með neinar tillögur til úrbóta. Það er bara Össur í hnotskurn.

Það er ekki hægt að ætlast til að allt sem gert er sé rétt, það getur enginn flokkur gert slíkt. En það er þó betra að það yfir 50% af því sem þú gerir rétt, heldur en að gera aldrei neitt. Þá gerist 0% gott.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Hold your horses boys :? :?

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
EIgum við ekki bara að hætta þessu bulli?!

Detta rækilega í það og gleyma þessu fucking kjaftæði :lol:

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:41 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Ég gekk of langt. Sendi Stanky einkapóst. Þetta var orðið of persónulegt. Biðst velvirðingar.

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:46 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
En fyrst þetta er kannski komið á það stig að ég fari nú að segja eitthvað sem vit er í (þetta er fyrir Sæma og Skúla :))

Ég hefði viljað séð þetta gerast svona:


1. Þjóðnýting bankanna átti aldrei að gerast. Þeir sem áttu kröfur á bankanna (kröfuhafarnir), áttu að koma til landsins og taka yfir bankana (þetta gerist líklega á hverjum degi, þegar fyrirtæki fara á hausinn, þá tekur kröfuhafi við rekstrinum). Kröfuhafarnir hafa lagt til milljarð ofan á milljarð í bankana og vilja að sjálfsögðu ekki tapa peningunum (eins og gerðist með þessa þjóðnýtingu). Kröfuhafinn vill að sjálfsögðu halda rekstri bankans áfram og ég tel að kröfuhafinn myndi mjög sennilega halda rekstrinum áfram með því að senda öllum viðskiptavinum sínum þau skilaboð að halda áfram að vera í viðskiptum við bankann svo hann færi nú ekki endanlega á kúpuna.

2. Davíð Oddson var of pólítískur að mínu mati í viðtölum sem áttu að snúast að seðlabankastjórn og krónu og auratali. Hann bókstaflega talaði KB banka á hausinn, sem er að sjálfsögðu slæmt og ég held að það geti enginn neitað því. Að mínu mati á að vera ópólítískur maður/kona sem er seðlabankastjóri, mér hefur fundist þetta alla tíð, eða síðan ég fór eitthvað að pæla í stjórnmálum, eða yfirhöfuð hafa skoðanir. Seðlabankastjóri sem kemur beint úr einhverjum flokki, sérstaklega svona stór pólítíkus eins og Davíð Oddson, sem er fyrrverandi Borgarstjóri, Forsetisráðherra og formaður Sjálfsstæðisflokksins á ekki erindi í sæti Seðlabankans. Það þyrfti að vera maður sem er menntaður á sviði fjármála. Svezel benti á að menn geta verið klárir í fjármálum þó þeir séu ekki beint menntaðir í þeim efnum og er það hárrétt, en maður sem er svona innvínklaður í pólítík hefur alltaf einhver áhrif út á við og lætur pólítískar skoðanir sínar oft ganga fyrir.

3. Stjórnvöld áttu að reyna þagga niður í Bretum á einhvern hátt fyrir rudda- og dónaskap í garð íslensk efnahagslífs. En það er kannski erfitt að þagga niður í svona stórri þjóð.

4. Það á að draga útrásarvíkingana til saka. Mennirnir stækkuðu bankana svo mikið og svo hratt að þetta var farið að verða eins og tímasprengja. Einn banki á kúpuna og spilaborgin öll fellur nánast. Mennirnir eru ekki bara að skuldsetja sjálfa sig heldur alla þjóðina, ég held að ég sé að fara með rétt mál að hvert og eitt einasta mannsbarn skuldi nú 5+ milljónir.

5. Ég held að Jón Ásgeir sé að stilla ríkisstjórninni upp við vegg. Hann flutti inn þarna einn af ríkari mönnum í heiminum og fór með hann á fund við ríkisstjórnina. Nú á ríkið einhvern hlut í Baugi Group og ég held að Jón Ásgeir vilji að þessi ríki kall kaupi hlut ríkisins í Baugi á slikk. Ef ríkið leyfir það ekki að þá "láti" hann þjóðnýta Baug í Bretlandi. Það þýðir jú, slatti af stöðugildum sem losna og við eigum eftir að skulda næstu 50 árin eða eitthvað bull mikið.

6. -Samsæriskenning- Mér finnst að við ættum að leyfa Rússum að koma núna hingað, byggja flugvöll eða olíuhreinsistöð eða eitthvað tengt hernaði. Þá held ég að bæði Bretar og Bandaríkjamenn eigi eftir að koma skríðandi til okkar með vasa fulla af peningum til þess að borga Rússana út. Því Ísland er svo gríðarlega sterkt land á sviði hernaðar (staðsetning). En ég tek það fram að þetta er svona ágætlega langsótt dæmi um samsæri :).


Ég held að ég sé nú ekki að gleyma neinu í þessum málum sem mér finnst að ættu að fara betur. :) Vonandi skilst þetta allt....

Kveðja,
Haukur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Tekið af Baggalutur.is


Nokkur lykilatriði, óþvegin
Enter — Forystugrein

Mér þykir rétt að drepa hér á nokkrum vinsælum umfjöllunarefnum, lauslega.

Evran.
Við höfum andskotakornið ekkert með þessa Evru að gera. Við eigum bara að drulluháleistast til að fara almennilega með krónuna okkar og sýna henni tilhlýðilega virðingu.

Hlutabréf.
Hverjum er ekki sama þó þessi útúrsnýttu bréfsnifsi fuðri upp? Þetta er mjög einfalt. Ef eitthvað er ekki til í alvörunni – ekki kaupa það.

Viðskiptafréttir.
Var ekki passlegt að hafa þetta allt á leiðinlegu síðunni í Mogganum? Æ, þið vitið, þessari þarna rétt aftan við miðju.

DeCode.
Af hverju fær Kári ekki bara huggulegan kontór í einhveri háskólabyggingunni með sæmilegri tölvu og stórum hörðum diski? Þarf virkilega að flækja málið svona?

Styttur.
Því fleiri styttur, því betra. En erum við í alvöru ekki komin lengra en að Tómasi Guðmundssyni? Og var hann ekki búinn? Kommon. Hvar er Jón Páll? Kiljan? Hvar er moðerfokking Ríó Tríó?

Ásdís Rán.
Er ekki hægt að hafa hana einhvers staðar í beinni? Ég verð bara að vita meira um hana.

Borgarfulltrúar.
Hér í eina tíð hefði ég ekki getað nefnt einn einasta borgarfulltrúa með nafni. Nú er smetti hvers eins og einasta þeirra greypt inn í heilabörkinn á mér. Þið eruð borgarstarfsmenn – ekki fyrirsætur.

Kreppan.
Mér býður við fólki, kjagandi í eigin spiki upp í raðgreidda jeppann sinn með útbelgda poka af sætindum og ropvatni til að sturta í sig og sína yfir heiladeyfandi pönnukökuskjánum sínum, sem dirfist að taka sér þetta orð í munn.

Bankarnir.
Hvaða fáskrúðsfirra er það að bankarnir eigi að vera góðir og tillitssamir? Síðan hvenær? Bankar eru vondar, gráðugar, valdasjúkar blóðsugur með það eitt að markmiði að græða peninga. Að búast við öðru er barnalegt.

Eimskip.
Það er algerlega ólíðandi að fara svona með sjálft akkeri íslenska lýðveldisins. Þeir sem eru ábyrgir ættu að vera kjöldregnir. Ítrekað.

Virkjanir.
Stífla allt helvítis draslið. Stíflur eru töff. Mosi síður.

Okrið.
Hættið að kaupa allt þetta fokdýra drasl, bjánarnir ykkar. Í guðanna bænum. Hættið að kaupa!

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:58 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Þetta er algjör gargandi snilld Kristján :lol: :lol: :lol:

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 22:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
Stanky wrote:
En fyrst þetta er kannski komið á það stig að ég fari nú að segja eitthvað sem vit er í (þetta er fyrir Sæma og Skúla :))

Ég hefði viljað séð þetta gerast svona:


1. Þjóðnýting bankanna átti aldrei að gerast. Þeir sem áttu kröfur á bankanna (kröfuhafarnir), áttu að koma til landsins og taka yfir bankana (þetta gerist líklega á hverjum degi, þegar fyrirtæki fara á hausinn, þá tekur kröfuhafi við rekstrinum). Kröfuhafarnir hafa lagt til milljarð ofan á milljarð í bankana og vilja að sjálfsögðu ekki tapa peningunum (eins og gerðist með þessa þjóðnýtingu). Kröfuhafinn vill að sjálfsögðu halda rekstri bankans áfram og ég tel að kröfuhafinn myndi mjög sennilega halda rekstrinum áfram með því að senda öllum viðskiptavinum sínum þau skilaboð að halda áfram að vera í viðskiptum við bankann svo hann færi nú ekki endanlega á kúpuna.

2. Davíð Oddson var of pólítískur að mínu mati í viðtölum sem áttu að snúast að seðlabankastjórn og krónu og auratali. Hann bókstaflega talaði KB banka á hausinn, sem er að sjálfsögðu slæmt og ég held að það geti enginn neitað því. Að mínu mati á að vera ópólítískur maður/kona sem er seðlabankastjóri, mér hefur fundist þetta alla tíð, eða síðan ég fór eitthvað að pæla í stjórnmálum, eða yfirhöfuð hafa skoðanir. Seðlabankastjóri sem kemur beint úr einhverjum flokki, sérstaklega svona stór pólítíkus eins og Davíð Oddson, sem er fyrrverandi Borgarstjóri, Forsetisráðherra og formaður Sjálfsstæðisflokksins á ekki erindi í sæti Seðlabankans. Það þyrfti að vera maður sem er menntaður á sviði fjármála. Svezel benti á að menn geta verið klárir í fjármálum þó þeir séu ekki beint menntaðir í þeim efnum og er það hárrétt, en maður sem er svona innvínklaður í pólítík hefur alltaf einhver áhrif út á við og lætur pólítískar skoðanir sínar oft ganga fyrir.

3. Stjórnvöld áttu að reyna þagga niður í Bretum á einhvern hátt fyrir rudda- og dónaskap í garð íslensk efnahagslífs. En það er kannski erfitt að þagga niður í svona stórri þjóð.

4. Það á að draga útrásarvíkingana til saka. Mennirnir stækkuðu bankana svo mikið og svo hratt að þetta var farið að verða eins og tímasprengja. Einn banki á kúpuna og spilaborgin öll fellur nánast. Mennirnir eru ekki bara að skuldsetja sjálfa sig heldur alla þjóðina, ég held að ég sé að fara með rétt mál að hvert og eitt einasta mannsbarn skuldi nú 5+ milljónir.

5. Ég held að Jón Ásgeir sé að stilla ríkisstjórninni upp við vegg. Hann flutti inn þarna einn af ríkari mönnum í heiminum og fór með hann á fund við ríkisstjórnina. Nú á ríkið einhvern hlut í Baugi Group og ég held að Jón Ásgeir vilji að þessi ríki kall kaupi hlut ríkisins í Baugi á slikk. Ef ríkið leyfir það ekki að þá "láti" hann þjóðnýta Baug í Bretlandi. Það þýðir jú, slatti af stöðugildum sem losna og við eigum eftir að skulda næstu 50 árin eða eitthvað bull mikið.

6. -Samsæriskenning- Mér finnst að við ættum að leyfa Rússum að koma núna hingað, byggja flugvöll eða olíuhreinsistöð eða eitthvað tengt hernaði. Þá held ég að bæði Bretar og Bandaríkjamenn eigi eftir að koma skríðandi til okkar með vasa fulla af peningum til þess að borga Rússana út. Því Ísland er svo gríðarlega sterkt land á sviði hernaðar (staðsetning). En ég tek það fram að þetta er svona ágætlega langsótt dæmi um samsæri :).


Ég held að ég sé nú ekki að gleyma neinu í þessum málum sem mér finnst að ættu að fara betur. :) Vonandi skilst þetta allt....

Kveðja,
Haukur


ég stóð einu sinni fyrir framan þig í röð.. og vissi hver þú varst en ekki öfugt, og þú fórst að tala um camaro.. eftir það hef ég verið lýstur óvinur þinn :lol:

en ég er alveg sammála þér í þessum pósti, og reyndar töluvert fleyrum

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 12. Oct 2008 00:37 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Það var mikið að Haukur fór að skrifa eitthvað af viti :D

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 71 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group