Schulii wrote:
Reyndar varð ég ekkert sár þó þú hafir mistúlkað póstinn minn svona og íhugaði að vera ekkert að leiðrétta það

..en þar sem ég sagði hvergi að þú værir heimskur finnst mér ég tilneyddur til að svara.
Ég skrifaði semsagt að svona ummæli fyndust mér oft.. svo kom hik.. og svo þar sem ég á erfitt með að átta mig á réttu orðinu stakk ég upp á "heimsk" og setti spurninga merki fyrir aftan. Það hlýtur í það minnsta að vera ansi lítið ígrundað ef maður segir þetta með fullri sannfæringu að "bara hvað sem er" væri fínt á þing. En stundum fleygir maður svona fram og ætti kannski ekki að taka svo alvarlega eins og ég gerði?
Varðandi skoðun á þér.. það er alveg rétt hjá þér. Það hefur haft áhrif að sjá þig kalla forsætisráðherrann djöful, fífl og móðurserði get ekki neitað því. Sérstaklega í ljósi þess að hann stendur líklega í einum erfiðustu sporum sem leiðtogi þjóðar getur búist við að standa í og þessi ummæli komi í kjölfar þess að ég var að benda á pressuna sem á honum hvílir og hversu vel hann hefur staðið sig síðustu daga og hann ætti skilið þá lágmarksvirðingu að vera veitt olnbogarými af innlendum fréttamönnum þó það væri ekki nema rétt til að afstýra millríkjadeilunni við Breta, kannski byrja að bauna á hann þegar hann þarf bara að takast á við fyrsta efnahagshrun heillar þjóðar á þessari öld.
Sammála öllu sem þú segir.
Ég varð ekkert sár við þessa pósta þína
En að sjálfsögðu verður maður önugur út í stjórn þessa lands þegar fólk er að missa aleigur sínar, sem það hefði kannski ekkert endilega gert hefðu verið tekið aðrar ákvarðanir.
Jú - það má segja það að Helgi Seljan hafi gengið of langt. En einhvernveginn finnst mér starf fjölmiðla að finna spurningar, sem eru á vörum þjóðarinnar sem ráðamenn eiga kannski örlítið erfitt með að svara. Við þurfum ekkert að vita hvernig kaffið og kleinan var í hádeginu hjá kallinum.
En það er fyllilega rétt hjá þér Skúli, að maðurinn er í mjög erfiðri stöðu, en einhvernveginn finnst mér að menn sem settir eru í þennan stól, eða bjóða sig fram í þennan stól verði að vera með allt á hreinu þegar og ef svona gerist. Að sjálfsögðu vissi enginn að þetta myndi fara svona en persónulega finnst mér að það ætti að fara öðruvísi að þessum leiðinlegu málum.
En öll erum við ólík með ólíkar skoðanir. (Klisjukent, ég veit)
Virðingafyllst,
Haukur
