Langaði bara svona að deila þessu þar sem það var mikil umræða um þetta hérna á öðrum þræði...
Núna er semsagt hann maxel littli loksins kominn með felgurnar sínar svo allir geta verið sáttir...
En hvernig hann fékk þær, það er annað...
Nenni nú ekki að fara í gegnum það aftur hvernig þetta byrjaði, en
Áðan þá hringir vinur axels og segir að ég hafi 2 valmöguleika
1 Láta þá fá felgurnar
2 Eða þeir ætluðu að láta mig, láta þá hafa felgurnar
(eða "Berja mig" eins og sumir mundu orða þetta)
Og ætluðu sko aldeilis að koma vel mannaðir til þess að vera öryggir um að fara aftur í bæinn með felgurnar með sér...
Og þetta var eitthvað sem varð að gerast í kvöld, það var ekki nóg á morgun, annars ætluðu þeir þá bara að sækja þetta, (brjótast inn?)
Það var brotist inn í geymslurnar í blokkinni síðustu helgi, en ekkert tekið
Er ekki að segja að það hafi verið þeir, en það kæmi mér ekkert á óvart að þeir hafi verið að leita að felgunum...
Ég nenni bara ekki að vera að standa í svona andskotans rugli að vera endalaust verið að hóta manni, lögfræðingi og barsmíðum.
Þannig að ég ákvað að láta hann hafa þetta áður en þetta fer út í meira rugl...
Jújú, oki ég var kanski ekkert sá skemmtilegasti með að segja að ég þyrfti KANSKI að nota felgurnar,
Eftir að ég var búinn að geyma þær í mánuð frá því að bíllinn seldist
Og já, það er ekkert afsal og því hvergi skriflegt að hann hafi ÁTT að fá þessar felgur
En þá hótar hann mér lögfræðingi, og svo stuttu seinna setur þetta á netið í stað þess að klára þetta á milli okkar.
Þannig að ég ákvað að hann fengi þá bara ekkert þessar felgur
(sem ég þurfti svo ekkert að nota)
Svo er manni hótað í dag "barsmíðar" (ætluðu að fá þær með góðu eða illu)
Núna er hann allavega kominn með þetta svo ég vona að ég eigi ekki von á því að fá fleiri hótanir í bráð frá óþroskuðum einstaklingum...