Pólskur vunnufélagi minn segir að í rússneskum og pólskum fjölmiðlum sé talað um að þetta lán sé bara bull. Rússar séu ekki að lána okkur neitt.
Það er kannski þessvegna sem gengið er farið að hækka aftur?

Í sömu frétt hefur Bloomberg eftir Alexei Kudrin fjármálaráðherra Rússlands að þeim hafi borist beiðni frá íslenskum stjórnvöldum og að þeir hafi tekið "jákvætt" í þá beiðni.

Davíð segir jafnframt að tilkynning Seðlabankans í morgun hefði verið röng, en þar sagði að lánið væri í húsi.

sagt er.... að Jón Ásgeir, Stoðir og Baugur hafi á síðustu 3-4 vikum
> næstum því strípað allt lausafé af Glitni. Lárus og Þorsteinn Már
> reyndu að stoppa það en gátu ekki. Þeir voru eiginlega búnir að
> missa stjórn á bankanum. Það var ástæðan fyrir því að Seðli vildi
> ekki lána og kröfðust 75%. Ef þeir hefðu lánað eða ekki haft
> afgerandi meirihluta þá hefðu peningarnir runnið áfram til Jóns.
> Óánægja Þorsteins Más snýst um að hann vildi ekki að ríkið
> eignaðist meira en 50% - fyrir utan það að hann tapar persónulega
> miklum fjármunum.
>
> Bréf Baugs og Stoða voru tekin út úr fjárfestingarsjóðum Glitnis í
> gær og fyrradag. Samkv. sömu heimildum fer Salt Investmenst Robba
> Wessmann á hausinn.
>
> Það gengur sú saga í bankaheiminum að fundir Björgólfs með DO og
> Geir hafi ekki snúist um yfirtöku á Glitni heldur björgun
> Landsbanka sem riði til falls. Feðgar séu búinir að setja nærri 60
> ma nú þegar í Actavis og Eimskip fyrir utan það er Landsbankinn er
> að fá sennielga vel á annað hundrað milljarða í hausinn í
> gjaldþrotum fyrirtækja sem þeir hafa lánað til, s.s. Nýsis, spænska
> fyrirtækis sem þeri fjármögnuðu, Askar capital, Icebank (sem er
> gjaldþrota), Baugs, Teymis, 365 etc etc. Fyrir tveimur vikum voru
> settar nýjar reglur um fyrirgreiðslu við viðskiptavini hjá
> landsbankanum - semsagt ekki lána neitt - mjög harðar reglur.
>
> Yfirtakan á Byr var plott frá Jóni Ásgeiri og öðrum hluthöfum -
> aðallega Saxbygg, sem gekk út á það að strípa Byr til að reyna að
> halda lífi í Glitni. Þeir ætluðu að nota Byr eins og hræ sem refur
> leggst á til að lifa af veturinn. Convenient fórnarlamb -
> sérstakelga vegna þess að það var nógu mikið af sameiginllegum
> hluthöfum til að geta látið þetta ganga.
>
> Sjóður 1 - Glitnir Skuldabréf, fjárfestir til dæmis í skuldabréfum
> fyrirtækja. Verðmæti sjóðsins 1. september var tæpir 48 milljarðar
> króna, þar af voru skuldabréf fyrirtækja 57%. Stærstu skuldarar eða
> útgefendur skuldabréfa sem sjóðurinn á voru þá Íbúðalánasjóður, FL
> Group - nú Stoðir - og Glitnir.
>
> Sjóður 9 - Glitnir peningamarkaður - fjárfestir í
> skammtímaverðbréfum. Verðmæti sjóðsins um síðustu mánaðarmót var
> rúmir 117 milljarðar króna - og stærstu skuldarar þar - Glitnir,
> Straumur, Stoðir og Baugur.
>
> Þriðji sjóðurinn sem lokað var er sjóður 9.1 - Glitnir,
> peningamarkaður, evrur. Verðmæti hans voru rúmir átta milljarðar um
> síðustu mánaðarmót og skráð skuldabréf fyrirtækja voru um
> þriðjungur eigna sjóðsins. Lokun þessara sjóða var ákvörðun
> stjórnenda Glitnis, en hún var tilkynnt til Fjármálaeftirlitsins
> eins og lög gera ráð fyrir.
>
> Það er alveg augljóst að Baugur hefur gefið út bréf sem Glitnir
> hefur tekið inn í almenna sjóði í stórum stíl án nokkurrar tryggingar
>
> Þrír sjóðir Glitnis, sem hafa verið lokaðir síðustu tvo daga, verða
> opnaðir á morgun. Í tilkynningu frá Glitni segir, að óvissu um
> skuldabréf í sjóðunum hafi verið eytt og þar sé nú ekki að finna
> nein skuldabréf á Stoðir hf, sbr. http://www.m5.is/?
> gluggi=frett&id=59360.
>
> Það er semsagt verið að afskrifa skuldir Baugs til þess að þær
> dragi ekki niður bréf almennra eigenda.
>
> Best stendur Kaupþing, en athygli vakti að hér fyrir utan var ansi
> fjölmennur floti dýrra bíla fyrir kl. 8 í morgun.
Djofullinn wrote:http://visir.is/article/20081007/VIDSKIPTI07/19818760/-1Davíð segir jafnframt að tilkynning Seðlabankans í morgun hefði verið röng, en þar sagði að lánið væri í húsi.

Bjarki wrote:Menn eitthvað farnir að hamstra?
Það er kominn smá lager á mínu heimili.
Lánveiting frá Rússum eru fyrir mér hræðileg tíðindi.
Margt vont sem kemur upp í hugann!!
Lýsandi fyrir því hversu neyðin er mikil....
Við erum að upplifa ótrúlega atburði.

Aron Andrew wrote:Er búið að loka á íslensk kreditkort erlendis?
Er búinn að prufa fullt af kortum með nægum heimildum en það kemur alltaf að þeim sé hafnað...
Hvað er málið?

gstuning wrote:Aron Andrew wrote:Er búið að loka á íslensk kreditkort erlendis?
Er búinn að prufa fullt af kortum með nægum heimildum en það kemur alltaf að þeim sé hafnað...
Hvað er málið?
hvað ertu að reyna taka mikið út?
erlend úttektar heimild per dag er auðvitað búin að breytast feitt útaf genginu hjá VISA/MC
Aron Andrew wrote:Er búið að loka á íslensk kreditkort erlendis?
Er búinn að prufa fullt af kortum með nægum heimildum en það kemur alltaf að þeim sé hafnað...
Hvað er málið?
Aron Andrew wrote:gstuning wrote:Aron Andrew wrote:Er búið að loka á íslensk kreditkort erlendis?
Er búinn að prufa fullt af kortum með nægum heimildum en það kemur alltaf að þeim sé hafnað...
Hvað er málið?
hvað ertu að reyna taka mikið út?
erlend úttektar heimild per dag er auðvitað búin að breytast feitt útaf genginu hjá VISA/MC
Er það samt ekki alltaf miðað við hvað þetta er mikið í isk?
Er búinn að borga miklu feitari summur undanfarið heldur en ég er að reyna að borga núna. Frekar pirrandi!

Users browsing this forum: No registered users and 35 guests