by 200 » Mon 06. Oct 2008 13:48
ég skil MRHUNG alveg, þetta er ömurlegar aðstæður sem við lendum í sem höfum tekið lán fyrir bílakaupum, Sjálfur tók ég c.a 2.5 í yen/franka körfu og það er komið uppí c.a 4.4 milljónir, ég þekki því tilfinninguna vel.
Bara svo þetta sé á hreinu; og mig langar að útskýra þetta aðeins fyrir ykkur.
Bílalán (nánast horfin fjármögnunarleið), lántaki á bílinn en fjármögnunarfyrirtæki 1.veð í bílnum. Verði bíllinn/tækið tekið v. vanskila er það selt á uppboði og uppboðsandvirðið (það sem hann selst á) er dregið frá skuldinni, (sjá neðar hvað bætist við skuldina)
Bílasamningur, fjármögnunarfyrirtæki á bílinn. Verði bíllinn/tækið tekið v. vanskila fer bifreiðin í verðmat og það sem kemur útúr því dregst frá skuldinni. Það skiptir öllu máli að skilja hvernig uppgjör v. bílasamninga fara fram svo þið fáið tilfinningu fyrir því hvaða þýðingu þetta hafi.
Bílasamningar eru gerðir þannig upp að til að finna verðmæti bílsins er notast við uppítökuverð, það verð er síðan dregið niður um 15% skv. heimild í samningnum, svo er farið með bílinn í ástandsskoðun (yfirleitt hjá Frumherja) þar sem allar aðfinnslur að bílnum eru metnar honum ennfremur til lækkunar m.ö.o allt sem er að honum er verðlagt og dregið frá virði bílsins. Þegar hingað er komið er búið að draga bílinn lágmark niður um 30% í verði, takið eftir þetta virkar eins hja öllum fjármögnunarfyrirtækjunum.
Í báðum tilvikum (bílalán/bílasamningur) leggst á töluverður kostnaður við skuldina, m.a lögmannsþóknun sem er % af upphæð í vanskilum., einnig sölulaun eða uppboðsskostnaður, umsýslugjald m.a
Það kemur enginn vel útur því að láta fjármögnunarfyrirtæki taka bíl einsog sést og
ALLS ekki heldur þegar höfustóllinn á láninu er búinn að hækka svona..
Það er hægt að semja um að viðkomandi fjármögnunarfyrirtæki taki bíl áður en til vanskila kemur, EN það fer samt fram uppgjör einsog ég útskýrði hér að ofan.
Ég hvet ykkur til að reyna halda bílnum og greiða og vona að þetta lækki aftur, ég geri það allavegana.
Þar sem ég vinn bara við þetta óska ég þess að þið farið ekki í stríð hérna á spjallinu við mig. Ég skal hinsvegar glaður útskýra fyrir ykkur og svara spurningum sem þið kunnið að hafa.
Annað og í lokin, Varðandi tryggingamál lendi bifreiðin í tjóni:
það má leiða líkum af því að ykkar lán hafi hækkað töluvert, en mat tryggingafélaganna á bifreiðunum hefur ekki hækkað, m.ö.o ef þið lendið í árekstri og sama þótt þið séuð í 100% rétti þá mundið þið standa eftir með mikla skuld við viðkomandi fjármögnunarfyrirtæki, skuld sem þið þurfið að setja á bréf með ekki jafn hagstæðum vöxtum, og jafnvel þó sá sem keyrði á ykkur hafi verið blindfullur. Þetta þarf að laga.