Jónas wrote:
basten wrote:
Mér finnst afar varhugavert að ætla að stjórna reykingum fólks með því að hækka verð á tóbaki. Það kemur bara niður á láglaunafólki sem reykir.
Sé ekki fyrir mér að einhver stórreykingamaðurinn hætti að reykja bara af því að pakkinn er orðin dýrari. Hugsa að hann skeri bara niður á öðrum sviðum, sem er ekki gott ef um fjölskyldufólk er að ræða.
PS. er EKKI reykingamaður sjálfur.
Ef maður hugsar þetta skattalega séð er þetta einmitt hárréttur skattur til að leggja á..
Þ.e. leggja skatt á vörur sem eru óteygnar, þótt að skatturinn sé lagður á þá minnkar salan ekki mjög mikið.. og skatttekjur ríkis aukast vel.
Það er alveg rétt, en bara það sem ég var að benda á er það að oft er það láglaunafólk sem reykir mikið þannig að hækkun til að stýra þessari neyslu bitnar harkalega á þeim.
Auðvitað er líka auðvelt að réttlæta skatthækkun á tóbaki í tengslum við kostnað vegna heilbrigðisþjónustu. Það þarf bara að fara varlega í alla svona hluti, sérstaklega þá sem fela í sér forræðishyggju.