Nú er ég með bílalán í íslenskri mynt
Græði ég eitthvað á því að breyta því yfir í erlent akkúrat núna þegar gengisvísitalan er há?
ruv.is wrote:Formenn allra stjórnmálaflokka voru boðaðir á skyndifund í Seðlabankanum klukkan ellefu í gærkvöld. Heimildamaður Fréttastofu Ríkisútvarpsins sagðist ekki vita hvað væri til umfjöllunar á fundinum, en hann sætu tveir forstjórar Kaupþings auk Seðlabankastjóra og flokksformanna. Hins vegar væri ljóst að fundarefnið hlyti að vera hið alvarlega efnahagsástand á Íslandi.
Fundi formanna stjórnmálaflokkanna í Seðlabankanum lauk nú rétt fyrir miðnætti. Menn voru fremur brúnaþungir en gert er ráð fyrir að forsætisráðherra og bankastjórn Seðlabankans hafi gert grein fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í efnahagsmálum og hugsanlega boðað aðgerðir til að sporna gegn gjaldeyrisþurrð. ,,Ég vil ekkert segja," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sem mætti í fjarveru Guðjóns A. Kristjánssonar formanns Frjálslynda flokksins. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, tók í sama streng.
,,Þið fáið ekkert upp úr okkur," sagði hann. Áréttuðu þeir að þagnareiður gilti um fundarefnið.
Reiknað er með að ríkisstjórnin kynni aðgerðir sínar í fyrramálið.
einarsss wrote:http://dv.is/frettir/2008/9/28/thagnareidur-um-midnaeturfund/Fundi formanna stjórnmálaflokkanna í Seðlabankanum lauk nú rétt fyrir miðnætti. Menn voru fremur brúnaþungir en gert er ráð fyrir að forsætisráðherra og bankastjórn Seðlabankans hafi gert grein fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í efnahagsmálum og hugsanlega boðað aðgerðir til að sporna gegn gjaldeyrisþurrð. ,,Ég vil ekkert segja," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sem mætti í fjarveru Guðjóns A. Kristjánssonar formanns Frjálslynda flokksins. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, tók í sama streng.
,,Þið fáið ekkert upp úr okkur," sagði hann. Áréttuðu þeir að þagnareiður gilti um fundarefnið.
Reiknað er með að ríkisstjórnin kynni aðgerðir sínar í fyrramálið.
Users browsing this forum: No registered users and 29 guests