Djofullinn wrote:Þú ert væntanlega að tala um bílinn sem BMW_owner á áður en hann var málaður. TE-802.bebecar wrote:Svezel wrote:Ég reynsluók avus bláum E34 M5 með 3.8 mótor haustið 2005. Sá bíll var með ljósri leður innréttingu með tau innserti og álímdum "viðarlistum" sem voru vægast sagt subbulegir.
Hann var svo sannarlega ekki að skila sínu miðað við þá M5 sem ég hef ekið og augljóslega eitthvað mikið að fóðringum og öðru í hjólabúnaði. Hann klonkaði hressilega við gírskipti og settist gjörsamlega á rassgatið við smá launch.
Hann var grár í húddinu og einhverjar víraflækjur tengdar þjófavörn útum allt. Einnig var á honum einhver fallbyssukútur sem var ekki alveg að virka fyrir mig og mér finnast þessir USA glitaugu alveg glötuð en einhverjum þykir þetta kannski fínt.
Langaði mikið í bílinn en sá að það borgaði sig ekki þá miðað við hvað þurfti að eyða í bílinn. Má vel vera að hann sé í betra standi í dag en ég sé hann reglulega renna framhjá vinnunni með nettum drunum og hann lúkkar allveganna ágætlega á ferð.
Langar ennþá gríðarlega mikið í góðan E34 M5, 3.6 eða 3.8 skiptir mig engu, en ég myndi vilja hann 100% stock í orginal lit. E39 M5 heillar mig ekki og E60 M5 er bara alltof mikill pakki
Það er bara eins og ég hafi skrifað þetta![]()
Ég man vel eftir klúnkinu og hvernig hann settist núna þegar þú minnist á það. Augljóslega sami bíllinn sem samkvæmt Sveinbirni er ekki til...![]()
Ekki vill svo vel til að þú munir hvaða númer er á honum?
En ég er sammála þér með M5-urnar - eins og talað út úr mínum munni.
Sveinbjörn er að tala um annan sem var fluttur inn fyrir nokkrum árum og er mynd af á síðu 2. SX-739
neinei minn er ekki með neinum viðarlistum né állistum og er ekki 3.8l né grár í húddinu og ekki flóðabíll hann v-er bara með ljósu leðri og er M5
ég veit ekki hvaða draugam5 er verið að tala um en það getur bara varla verið minn


