Harðar skoðanir hérna á þessum málum - auðvitað er áhætta að taka verk svört.
Iðnaðarmenn taka svört verk hægri vinstri og gera það oftast þannig að þeir slá bara virðisaukann af þannig að þeir eru samt að koma 33% betur útur þessu, eðlilega fylgir þessu viss áhætta sem menn verða að átta sig á.
Ég er ekki sammála svona vinnubrögðum, en þessi Ragnar lítur ekki vel út heldur eftir þáttinn, hissa að kompás hafi notað hann sem agn. Fannst best þegar umræddur handrukkar sagði "hvað veit ég nema að það séu helling af camerum hérna í kring, þú ert alveg ekta svoleiðis auli!" <-- hitti naglann á höfuðið, fyrst að við erum á iðnaðarmannanótunum.
En málið er bara frekar einfalt, á meðan þessi heimur er til verða þeir þarna.
Skuggalegasta við þennan þátt var án vafa það að lögreglumaðurinn var nákominn umræddum brotamanni og hafði uppi dylgjur til að fá menn til að hættavið kæru og fleira.
Mjög hissa að kompás hafi ekki einblínt meira á þetta. Rannsóknarmennskan eitthvað að fara forgörðum hjá þeim sýnist mér - en kræklingarnar þurfa auðvitað sinn air-time.
Kompás var betri þegar þeir tóku allt með hörku
