bebecar wrote:
98.OKT wrote:
Alpina wrote:
Þetta var aldeilis..
þessi þjálfari ,, hlýtur að hafa grynkað á biðröðinni hjá sér eftir þetta
ótrúlegt hvert stefnir í svona málum
en held samt að þessari þjónustu//innheimtu verði því miður stundum að beita, þegar mikil óheilindi og vísvitandi svik standa að baki
Ég held nú reyndar þvert á móti að hann gæti orðið vinsælli einkaþjálfari ef eitthvað er útaf þessari frétt....
En já ég verð nú að segja að svona "þjónusta" verður því miður í sumum tilvikum að vera í boði, þar sem óheiðarleiki og peningagræðgi fólks getur verið gríðarleg, og þá gengur í sumum tilfellum ekkert annað en svona "þjónusta"
Fólk sem freystast til að þiggja svona þjónustu er ekkert skárra sjálft.
Ég get ekki verið sammála þér þarna...
Bara sem dæmi þar sem ég er iðnaðarmaður og þekki marga í þeim bransa að þá get ég komið með eina sögu.
Einn ákveðinn aðili sem ég þekki smíðaði sólpall fyrir annan aðila, og ekkert með það, aðilinn sem ég þekki lagði til allan peninginn fyrir efninu (sem kostaði um 1,3 milljónir) til að eigandi lóðarinnar fengi betri afslátt, og hann ætlaði alltaf að borga efnið þegar það kæmi á staðinn. en alltaf drógst það og eftir að vinnan var ca. hálfnuð að þá borgaði maðurinn helming upphæðarinnar og sagðist ætla að borga rest ásamt vinnulaununum næstu mánaðarmót (þarna var búið að vera að vinna í þessum palli í rúmar þrjár vikur og kominn 5. dagur næsta mánaðar),
þannig að góðkunningi minn samþykkti það og kláraði svo pallinn ca. þremur dögum fyrir mánaðarmót.
Þannig að svo um mánaðarmótin (s.s 5. næsta mánaðar) kemur hann til að rukka hann um peninginn (sem var 650.000 fyrir efni, og 1.600.000 fyrir vinnuna sem var b.t.w samþykkt tilboðsupphæð) s.s 2.250.000 kr. þá þá kemur hann að frekar fátæklegum kofanum, kallinn kom með allskonar afsakanir fyrir því að hann gæti ekki borgað þetta þessi mánaðarmót en lét hann fá 250.000 uppí þessa upphæð...
Auðvitað voru menn ekkert sáttir við þetta en hann ákvað að gefa honum séns á að borga þetta næsta mánuð á eftir.
En það liðu þrjú önnur mánaðarmót og eigandi hússins var hættur að svara síma og lét sem enginn væri heima þegar komið var heim til hans...
þá var þolinmæðin búin enda ekki lítil upphæð í spilinu, og þá var ekkert eftir nema að sækja eftir aðstoð svona manna, enda skilaði það þeim árangri að hann fékk þennan pening viku seinna og málið var dautt!!!!!
Þess má geta að þetta var svört vinna þannig að ekki var hægt að kæra til lögreglu þar sem engir pappírar voru til um þetta.............