Var aðeins að fara í gegnum video/myndir frá í dag.
Tauber gengið mætti upp úr hádegi (25 stykki) og kíktum við
nokkur í NurburgMotorsport til að kíkja á E30 M3 bíl með ónýta
vél sem Tauber menn munu kannski fixa og svo átti að finna
út hvað var að hrjá RNGTOY.

Sebastian var ekki lengi að finna hvar blístraði - þetta var
hosan frá blásara að vatnskælda inntakinu. Hosuklemman
upp við inntakið hafði runnið af. Altjört hell að komast að þessu
og þurfti að taka vatnið af inntakinu og losa nokkrar slöngur
til þess.

Undirritaður á víst nokkra sök á þessu þar sem hann teipaði hosuna
með svörtu teipi sem minnkaði viðnámið
Allavega - slatti af teipinu var fjarlægt og svo var þrautin þyngri að
koma þessu aftur á og var German eldri bróðir Sebastians fenginn
til að hjálpa:

Þegar þetta var allt komið saman fóru þeir bræður í prufurúnt og
komu glaðir til baka og voru sáttir báðir tveir.
Smellti hér mynd af "auglýsingu" sem ég samþykkti að færi á
bílinn þó að ég ætli að hafa allt slíkt í lágmarki - karlinn á þetta
alveg skilið:

Brautin opnaði ekki fyrr en klukkan var langt gengin í 6 þar sem
þeir voru lengi að ganga frá eftir RCN keppnina í dag.
Það var ekki mikill séns að taka hraða hringi þar sem það
var mikil traffík - hér er fyrsti hraði hringurinn hjá mér -
Andy hjólagaur var með mér (er með þeim sneggri á
tveimur hjólum á slaufunni):
http://www.rngtoy.com/thordur/almennt/E ... 2_0854.wmvTók 4 hringi og var ekkert vesen á RNGTOY
Eftir að Touristfahren var búið voru RSR menn með brautina á leigu
og komu þessar græjur á þeirra vegum:




Þarna eru 2 Nissan GTR og svo nýi sportbíllinn frá RUF - mega flottur.
Þessi jaxl var bara skilinn eftir og fékk ekki að fara með út á braut,
algjört hneyksli


En full rúta fór út á brautina - væntanlega Track Walk á vegum RSR:

Og á meðan öllu þessu stóð var þessi bilaður á frekar pínlegum
stað - rétt kominn af brautinni fyrir framan haug af fólki. Hann
var alveg steindauður og einhver villa varðandi F1 skiptinguna í
honum. Eftir að hafa staðið þarna í örugglega hátt í hálftíma fór
hann aftur í gang - væntanlega verið búinn að kólna nóg.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...