Sæl öll.
Í mínum gamla jálki er K-Jetronic innspýting í fullkomnu standi, maður hefur samt sem áður alltaf áhuga á því að auka aflið og þá leitar maður gjarnan að ódýrstu leiðinni fyrst.
Veit einhver hvort maður mætti gera ráð fyrir mikilli aflaukningu og hvort það er framkvæmanlegt með því að skipta úr K í L eða LH Jetronic.
Nú var K-Jetronic til dæmis í Porsche 928 1977 og fram til 1985 eru einu breytingarnar að borá út vélina og skipta yfir í fyrst L og svo LH-Jetronic.
Útborunin var eftirfarandi. Úr 4.5 lítrum og 219 hestöflum 1977 í 5 lítra og 320 hestöfl 1985, úr K í LH með L á milli (300 hestöfl og 4.7 lítrar).

