Ohh, nú rifjast upp minningarnar um öll þau skipti sem að löggan stoppaði mig
þegar að ég átti OZ-390 
Alveg sérlega eitt skipti þegar að ég var meðleigjandi í aðstöðu með Viktori og co.
Þetta var s.s klukkan 3-4 um nótt að vetri til og var komið þykkt lag af nýföllnum snjó yfir allt og engin umferð. Ég var s.s. búinn að vera niðrí aðstöðu að setja ljóskastara á bílinn og þrífa hann og er svo á leiðinni heim. Og þar sem að bíllinn var svo lár þá skóf hann snjóinn eins og snjóplógur og jújú ég á leiðinni heim keyri inní hringtorgið við Aðalstöðina og viti menn er ekki löggan að koma á móti mér inní hringtorgið er ég keyri útúr því. Ég hugsaði strax frábært núna verð ég stoppaður og jújú hún stoppaði mig og við erum að tala um það að ég keyrði á gönguhraða vegna þreytu og færðin bauð ekki upp á annað
