Þegar ég er að keyra þá tek ég eftir því að bílinn byrjar sjálfkrafa að beygja pínu lítið í til hægri eða vinstri, semsagt ég þarf að leiðrétta stefnu bílsins af og til, mjög pirrandi í hjólförum og á 70km+. Ég var eiginlega búinn að venjast þessu en mér finnst eins og þetta hafi versnað uppá síðkastið. Þetta er semsagt eins og massíft slag í stýrinu.
Dekkin eru ekkert misslitin, spyrnur og fóðringar eru í fínu standi var mér tjáð. Var búinn að skoða eitthvað á bimmerforums og þar var talað um að algeng ástæða fyrir slagi í stýri á E34 væri laus einhver ró í stýrisganginum, ég athugaði hana og hún var pikkföst.
Gæti þetta þá ekki verið stýrismaskínan að faila? Er þetta eitthvað fyrir leikmann að krukka í? S.s. einhvern sem hefur ekki aðgang að lyftu/gryfju.
Er ekki til einhver ódýr lausn á þessu, ég er orðinn þreyttur á að horfa á eftir 5000 köllunum fjúka í þennan bíl
..og ef einhver veit um leið til þess að ná sviss úr bílnum sem ekki er hægt að ná út með hefðbundna ráðinu má endilega láta ljós sitt skína hér
