Komst loksins í að prufa þessa vöru.
Gat þó ekki haft bílinn inni í sólahring eins og mér var ráðlagt en árangurinn var samt sem áður góður.
Skilar virkilega góðri speglun og útkoman var skuggalega góð þegar maður virkilega lagði vinnu í þetta.
Efnir var einnig gífurlega þægilegt í vinnslu, þónokkuð þægilegra en Mothers 3 þrepa línan.
En verð þó að segja að Dodo Juice prufu vörurnar gera ekki eins mikið á "illa" förnu lakki og Mothers 3 þrepa línan.
Virkaði ekki eins vel á fínu rispurnar og Mothers gerði, greinilega smá massi í Mothers.
EN myndi hiklaust mæla með þessu á lakk sem er vel með farið, tala nú ekki um ef þú byrjar á því að fara með Mothers og ferð svo yfir með Dodo Juice.
_________________
Geysir Golf - Kíktu í Golf'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard