17. september, 2008 - 13 ummæli »
Óþjóðholla bandalagið
Orðið á götunni er að þegar ljóst var í upphafi árs hvert stefndi í efnahagsumhverfinu hafi verið tekin sú ákvörðun í efsta lagi eins af viðskiptabönkunum að leggjast á krónuna í þeim tilgangi að veikja hana svo um munaði. Ástæðan var einfaldlega sú að menn þar á bæ sáu ekki aðra leið færa til þess að bjarga afkomu ársins 2008.
Orðið er að um leið hafi sömu aðilar smalað saman aðilum úr illa förnum útrásarhópi landsmanna og gefið þeim kost á að rétta sig af með því að vera með í leiknum og taka stöður á móti krónunni.
Orðið á götunni er að nokkrir einstaklingar, þar með talið æðstu stjórnendur eins af bönkunum, hafi verulega persónulega hagsmuni af veikingu krónunnar og að það styttist í að svokölluðu 180 markmiði verði náð, en það var það gengisvísitölu-markmið sem hópurinn setti sér þegar hann lagði af stað.
Gengisvísitalan endaði í nýrri methæð í dag, 175,95 stigum. Innan dagsins fór fór hún hæst í 178,45 stig.
http://eyjan.is/ordid
Ef satt er þá er þetta náttúrulega ekkert nema landráð og ber að taka á því sem slíku.
Eitt samt í þessu öllu saman. Nú eru skuldirnar 10 billjónir ef ég man rétt (eða var það 8?) en hverjir skulda þetta? Ekki ég allavega....
Maður gerir ráð fyrir að þetta séu bankarnir og stærri fyrirtæki landsins en hvað gerist þá ef fyrirtæki fá hreinlega að fara á hausinn með þetta - kröfuhafarnir eru erlendir og tapa sínu, ríkið tryggir inneignir... fjárfestar tapa sínu líka... og hvað svo?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road