Leiðinlegt að lenda í svona, ég hef sjálfur lent í lyklun.. þá var afturbrettið og skottlokið tekið á E39M5 bílnum mínum, ég borgaði viðgerðina sjálfur.
Stæðið sem ég lagði á (fyrir aftan hús) var stundum notað af einhverjum hasshausum, komu þangað til að gera sig heimskari, man eftir einu dæmi þar sem löggan gerði mega raid á því plani. Ég hafði ekkert unnið mér inn hjá neinum sem verðskuldaði svona lagað.
En.... Ef við gerum ráð fyrir því að þú hafir ekki gert neinum neitt persónulega undanfarið sem gæti orsakað svona viðbrögð þá dettur mér samt tvennt í hug sem hefur verið nefnt áður.
1. Pedo-bear límmiðinn.. sem mér finnst alveg MEGA heimskulegt að hafa í bílnum, gerir ekkert gagn og í raun bara ógagn því þetta vekur upp hörð viðbrögð hjá mörgum. Það gæti verið með ráðum gert að brjóta ekki þá rúðu. Fyrir þá sem eru enn með svona miða, takið þá í burtu, þið vitið það að það er fullt af fólki þarna úti sem finnst þetta nákvæmlega ekkert fyndið.
2. Einhver talaði um spól og æfingar, sem hugsanlega hefur farið all svakalega í taugarnar á einhvejrum nágranna.
Hvorugt verðskuldar að það sé kveikt í bílnum, en.. það er fullt af fólki sem er ekki í andlegu jafnvægi og bregst því svona við.
Það þarf ekki mikið til að æsa fólk upp. Í gær lenti ég í því að vera eltur heim af einhverjum "hnakka" á nýjum E90blæju, hvítur með rauðu leðri rosa næs en líklega 4banger diesel
Anyway.. hann var verulega upptekinn af því að láta horfa á sig því að hann drap á bílnum og keyrði hálf hálvitalega. í næsta hringtorgi fór hann í innri hring og notaði tækifærið go fór í ytri. Vinurinn var svo utan við sig við aksturinn að hann tók ekki eftir mér og keyrði næstum á mig. Þegar hann sá mig brást hann við með því að flauta og sýna mér hnefann, þannig að ég svaraði með útréttri löngutöng og hvössu augnaráði í gegnum Serengeti Drivers gleraugun. Þá gersamlega fríkaði hann út og keyrði í rassgatinu á mér (reyndar stutt því að hann átti ekki brake í V10). Allavega, þegar ég nálgast húsið heima sé ég hann enn á eftir mér, svo að ég keyri í rólegheitum inn í innkeyrsluna, en stoppa og horfi aðeins á hann, og gerði mig kláran í smá hasar, satt best að segja langaði mig dálítið að taka pínu hasar, ég var með golfsettið í skottinu og sá mér leik á borði með 3járninið í höndunum. Anyway.. til að gera langa sögu stutta rann greinilega allt blóðið úr titilingnum á honum því að hann brunaði í burtu, veit ekki hvort að hann átti ekki von á svona viðbrögðum frá mér, eða hann misreiknaði líkamsburði mína.
Ég fylgdist með í smá stund og sá hann koma aftur framhjá húsinu.. en hann gerði ekkert.
Samt..... hef ég nokkrar áhyggjur af því að hann mæti eitthvað kvöldið og taki session á bílnum mínum. Að vísu er ég 100% tryggður fyrir svona, en þetta kanski kennir manni að taka því rólega í umferðinni, það er fullt af nötterum þarna úti.