Sælir sérfræðingar,
Er einhver hérna sem hefur skipt um gírkassa í E36 325??
Ég var með getrag gírkassa og 2. gírinn brotnaði og ég fann bara zf gírkassa þannig að ég skellti mér á einn þannig.
Mér var sagt að hann ætti að passa og ég spurði líka á erlendu spjallborði og þeir staðfestu að hann ætti að passa en ég gæti þurft að breyta drifskaftinu eitthvað.
Þannig að ég fékk zf gírkassa og drifskaft með honum..
Þegar ég reif svo getrag gírkassan úr og bar hann saman við zf þá virtust þeir alveg eins langir, boltagötin á sama stað og ekkert sem ætti að koma í veg fyrir að hann myndi passa.
Síðan þegar kem ég honum á vélina en þá munar svona 1-2cm uppá að það væri hægt að festa hann.. hann bara VILDI EKKI fara nær vélinni.. sama hversu vel lúbaður hann var.
Dettur ykkur eitthvað í hug hvað málið gæti verið??
Ég og Einar Óli vorum að þessu og skildum ekki neitt.. endaði á að við vorum báðir orðnir svo pirraðir að við hættum
Vorum þá búnir að taka kassan úr og setja aftur í svona 3 sinnum!
Öll ráð VEL þegin
mbk
Árni