bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 18:37

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: F1 SPA
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 13:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Meiri geðveikin þarna í lokin!!!

Þessi keppni var algjör hátíð eftir leiðindin í Valencia.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 13:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
virkilega spennandi og góð keppni


Komu nokkur já!!! og svo nei!!! köll á víxl síðustu hringina :lol:

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 13:56 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Þetta var áhorfanlegt fyrstu 3 hringina og síðustu 7.

Bara gott move hjá þarna...gæjanum sem lenti í þriðja að fara á Intermediate dekkin.... vann sig upp úr 7 sæti....


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 14:09 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Stanky wrote:
Þetta var áhorfanlegt fyrstu 3 hringina og síðustu 7.


Er ekki trikkið þá að horfa á startið á RÚV+ og skipta svo yfir á RÚV. :-)

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 14:15 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
iar wrote:
Stanky wrote:
Þetta var áhorfanlegt fyrstu 3 hringina og síðustu 7.


Er ekki trikkið þá að horfa á startið á RÚV+ og skipta svo yfir á RÚV. :-)


Hehehe.... góður :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 14:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
iar wrote:



Er ekki trikkið þá að horfa á startið á RÚV+ og skipta svo yfir á RÚV. :-)


jú mæli með því.........




þar sem þetta er sýnt á stöð 2 sport :shock: :shock: :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 15:42 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
haha ingimar hefur sennilega ekkert skilið í því afhverju hann hafi ekkert séð F1 á þessu ári :lol:

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 16:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Virkilega spennandi síðustu hringir. Hafði verulega gaman að þessu :)

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 17:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
meira helvítis ruglið

http://mbl.is/mm/sport/formula/2008/09/07/sigur_daemdur_af_hamilton/

ég skil ekki afhverju þeir eru að refsa honum fyrir þetta? Hann hleypti gaurnum framúr sér og tók svo framúr honum.

Þetta hefur verið viðtekin venja, og ég man ekki eftir að það hafi verið refsað fyrir þetta áður.

En eitt málið sem ferrari kærir og vinnur, án þess að það sé nokkur glóra í

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 17:21 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 05. Mar 2007 20:49
Posts: 435
bara skemmtileg keppni enda ein skemmtilegasta brautin.
Svolítið spes ákvörðunin hjá fia að dæma hamilton niður í 3 þar sem að mér fannst raikonen algjörlega klúðra málunum einn sín liðs.
En ég er bara sáttur enda algjör anti-mclaren maður :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 19:38 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Lindemann wrote:
haha ingimar hefur sennilega ekkert skilið í því afhverju hann hafi ekkert séð F1 á þessu ári :lol:


AHA! Hlaut eitthvað að vera!! :idea: :idea: :idea:

:lol:

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2008 20:16 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 03. Mar 2006 16:21
Posts: 1442
Þetta er algjörlega réttur dómur, það sem Hamilton gerði var kol ólöglegt, það eina sem Mclaren hefur til varnar er að kimi þvingaði hann útaf.

Ég hef keyrt þarna sjálfur og þessi beygja er svo rosalega tight að maður kemst varla í gegnum seinasta partinn, þannig að Lewis kemur útur á miklu meiri hraða..

hægt að líkja þessu við að Hamilton hefði slept því að taka beygjuna, verið 5 sek á eftir fyrir beygjuna, og svo tekið framúr inní fyrstu beygju, hann tók ekki framúr neinum á meðan hann var utan brautar en hann stillti upp framúrakstrinum með því, hefði bara átt að bíða hann var hvorteðer sneggri aðilinn.

En stærsti looserinn í þessu er Kimi, ef hann hefði nú bara sætt sig við annað sætið og cruisað í mark hefði hann unnið, en er þetta ekki beutyið við sportið!

_________________
Kristján Einar
[url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=14304]
BMW 2002 Turbo ´75[/url]

gstuning wrote:
Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Sep 2008 12:53 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
Kristján Einar wrote:
Þetta er algjörlega réttur dómur, það sem Hamilton gerði var kol ólöglegt, það eina sem Mclaren hefur til varnar er að kimi þvingaði hann útaf.


Niki Lauda er ekki sammála þér þar sem hann kallar þetta versta dóm í sögu Formúla 1, ekki lítil orð það http://www.mbl.is/mm/sport/formula/2008 ... formulu_1/

Finnst þessi formúla vera farin að snúast meir og meir um Ferrari.

Gott blogg um þetta hjá Ásgeiri Ásgeirssyni á Formúlublogginu, set hérna inn færsluna hans og er hún skáletruð:

Sú hugsun sækir óþyrmilega á mig að dómarar kappakstursins í Spa hafi farið út á verulega hálan ís með því að dæma sigur af Lewis Hamilton hjá McLaren og afhenda hann Felipe Massa hjá Ferrari. Alla vega finnst mér þeir hafa framið tilræði gegn formúlunni. Gegn kappakstri. Gegn því að tekist sé á í brautinni. Á keppnin bara að vera prósessía? Halarófa, eins og líkfylgd?

Bannað er að skera beygju til þess að bæta stöðu sína í keppni í formúlu-1. Ef það gerist í návígi og stöðubreyting á sér stað, þá gefa ökumenn ávinninginn jafnan strax til baka og hleypa keppinautnum fram úr aftur. Eins og í gær. Hamilton hægði ferðina og hleypti Räikkönen fram úr, enda fékk hann til öryggis skipun um það af stjórnborði McLaren.

Hamilton hóf fljótt aftur sókn og vann forystuna af Räikkönen við næstu beygju með tilþrifum eins og þau gerast best í formúlunni. Sókndirfska hans hafði verið með þeim hætti - og Ferrarinn ekki eins góður á hörðu dekkjunum og McLarenbíllinn - að mér fannst það ekki spurning hvort, heldur hvenær hann tæki fram úr Räikkönen á þeim hringjum sem eftir voru.

Hamilton notfærði sér ekki nálægðina við Räikkönen eftir þverun beygjunnar til að hagnast af kjölsogi hans. Hann var aldrei í því, svo sem sést augljóslega á sjónvarpsupptökum. Hann skellti sér eldsnöggt af vinstri hlið yfir á þá hægri er Räikkönen var kominn fram úr og bremsaði síðan seinna inn í næstu beygju og komst við það fram úr.

Þótt keppnisstjórinn Charlie Whiting lýsti þeirri skoðun sinni strax við stjórnendur McLaren að Hamilton hefði farið rétt að og bæri ekki refsing þar sem hann afsalaði sér ávinningnum voru dómararnir því ósammála.

En þeir fóru reyndar inn á alveg nýjar brautir. Ákváðu að pæla í því hvort Hamilton hafi samt ekki haft nægan ávinning af atvikinu fyrst hann komst fram úr Räikkönen aftur! Og það var niðurstaða þeirra. Enda reglurnar ekki afdráttarlausar um hvað sé ávinningur og hvað ekki. Nýttu hinir frönsku, belgísku og kenýsku dómarar sér tómarúmið í regluverkinu til að túlka regluna með sínu lagi. Og hleyptu með því öllu í bál og brand.

Hér kveður alveg við nýjan tón. Nú er allt í lagi af hafa ávinning af því að skera beygjur, bara ekki of mikinn! Það veit bara enginn hvenær ávinningurinn er of mikill. Nema þessir þrír menn, frá Frakklandi, Belgíu og Kenýa. Vonandi hafa þeir vandað sig vel og hugsað málið rækilega til enda því hugsanlega er ekki hægt að kæra niðurstöðu þeirra!

Rétt er að velta því fyrir sér hvers vegna Hamilton skar beygjuna. Sú spurning er fyllilega réttmæt. Niðurstaðan er sú að hann átti ekki annarra kosta völ. Nema láta Räikkönen keyra inn í sig. Hann var kominn rúmlega upp að hlið Ferraribílsins á leið inn í beygjuna. En Räikkönen þvingaði hann einfaldlega út úr henni. Það sést greinilega er atvikið er skoðað. Það er ég búinn að gera margsinnis frá í gær.

Ég ætla ekki að segja að Räikkönen hafi haft rangt við með því. Þetta gerist einfaldlega oft í návígi sem þeirra Hamiltons. Og oftast grípa ökumenn þá til gagnráðstafana til að afstýra árekstri. Það gerði Hamilton.

Landi Kimi, Heikki Kovalainen, var réttilega sendur aukaferð gegnum bílskúrareinina fyrir svipað framferði snemma í kappakstrinum. Nema sá rakst utan í keppinaut sinn og olli með því afstýranlegum árekstri. Hvað hefðu dómararnir gert ef Hamilton hefði ekki vikið frá er á hann var lokað og þeir Räikkönen skollið saman. Hver hefði þá talist sökudólgur? Räikkönen hugsanlega, samanber Kovaleinen-Webber atvikið. Hefði það ekki verið rökrétt?

Það versta við þessa niðurstöðu er að nú fá allar kenningar um að verið sé að hygla Ferrari byr undir vængi á ný. Það lét ekki á sér standa í Spa í gær og í fjölmiðlum um heimsbyggðina alla í morgun. Úr verður málaþras sem tekið getur margar vikur að fá botn í. Og einhver óvissa ríkir um hvort hægt sé að kæra dómaraákvörðun af því tagi sem Hamilton var veitt.

Það ágreiningsefni þarf því að leiða fyrst til lykta, áður en tekið er á sjálfri refsingunni. Fáist það samþykkt hef ég ekki mikla trú á að niðurstöðu dómaranna verði raskað. Í langflestum tilvika hefur áfrýjunarréttur Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) einungis staðfest fyrri ákvarðanir fulltrúa FIA, sem dómararnir í þessu tilviki eru.

Endirinn á þessum skemmtilegasta kappakstri ársins er leiður. Farsi í boði dómara sem hætt hafa sér út á vægast sagt afar hálan ís. Kimi Räikkönen hafði sýnt sínar bestu hliðar og ekið sem kóngur í Spa. Hefði verið afar vel að sigri kominn. Og hleypt nýju fjöri í keppnina um heimsmeistaratitilinn. Massa situr aftur á móti upp með sigur í móti þar sem hann kom aldrei við sögu keppninnar um tvö efstu sætin. Ansi innantóm verðlaun það.

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Sep 2008 14:24 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 03. Mar 2006 16:21
Posts: 1442
já það er mikið til í þessu, persónulega finnst mér þetta ólöglegt en eins og ég sagði, að vörnin sem mclaren hafa er að kimi þvingaði hann útaf...

vafamál, ef ég hefði verið dómari hefði ég ekki viðhafst nema að málið hefði verið kært..

_________________
Kristján Einar
[url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=14304]
BMW 2002 Turbo ´75[/url]

gstuning wrote:
Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Sep 2008 18:28 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Thu 05. Jan 2006 22:25
Posts: 1382
basten wrote:
Kristján Einar wrote:
Þetta er algjörlega réttur dómur, það sem Hamilton gerði var kol ólöglegt, það eina sem Mclaren hefur til varnar er að kimi þvingaði hann útaf.


Niki Lauda er ekki sammála þér þar sem hann kallar þetta versta dóm í sögu Formúla 1, ekki lítil orð það http://www.mbl.is/mm/sport/formula/2008 ... formulu_1/

Finnst þessi formúla vera farin að snúast meir og meir um Ferrari.

Gott blogg um þetta hjá Ásgeiri Ásgeirssyni á Formúlublogginu, set hérna inn færsluna hans og er hún skáletruð:

Sú hugsun sækir óþyrmilega á mig að dómarar kappakstursins í Spa hafi farið út á verulega hálan ís með því að dæma sigur af Lewis Hamilton hjá McLaren og afhenda hann Felipe Massa hjá Ferrari. Alla vega finnst mér þeir hafa framið tilræði gegn formúlunni. Gegn kappakstri. Gegn því að tekist sé á í brautinni. Á keppnin bara að vera prósessía? Halarófa, eins og líkfylgd?

Bannað er að skera beygju til þess að bæta stöðu sína í keppni í formúlu-1. Ef það gerist í návígi og stöðubreyting á sér stað, þá gefa ökumenn ávinninginn jafnan strax til baka og hleypa keppinautnum fram úr aftur. Eins og í gær. Hamilton hægði ferðina og hleypti Räikkönen fram úr, enda fékk hann til öryggis skipun um það af stjórnborði McLaren.

Hamilton hóf fljótt aftur sókn og vann forystuna af Räikkönen við næstu beygju með tilþrifum eins og þau gerast best í formúlunni. Sókndirfska hans hafði verið með þeim hætti - og Ferrarinn ekki eins góður á hörðu dekkjunum og McLarenbíllinn - að mér fannst það ekki spurning hvort, heldur hvenær hann tæki fram úr Räikkönen á þeim hringjum sem eftir voru.

Hamilton notfærði sér ekki nálægðina við Räikkönen eftir þverun beygjunnar til að hagnast af kjölsogi hans. Hann var aldrei í því, svo sem sést augljóslega á sjónvarpsupptökum. Hann skellti sér eldsnöggt af vinstri hlið yfir á þá hægri er Räikkönen var kominn fram úr og bremsaði síðan seinna inn í næstu beygju og komst við það fram úr.

Þótt keppnisstjórinn Charlie Whiting lýsti þeirri skoðun sinni strax við stjórnendur McLaren að Hamilton hefði farið rétt að og bæri ekki refsing þar sem hann afsalaði sér ávinningnum voru dómararnir því ósammála.

En þeir fóru reyndar inn á alveg nýjar brautir. Ákváðu að pæla í því hvort Hamilton hafi samt ekki haft nægan ávinning af atvikinu fyrst hann komst fram úr Räikkönen aftur! Og það var niðurstaða þeirra. Enda reglurnar ekki afdráttarlausar um hvað sé ávinningur og hvað ekki. Nýttu hinir frönsku, belgísku og kenýsku dómarar sér tómarúmið í regluverkinu til að túlka regluna með sínu lagi. Og hleyptu með því öllu í bál og brand.

Hér kveður alveg við nýjan tón. Nú er allt í lagi af hafa ávinning af því að skera beygjur, bara ekki of mikinn! Það veit bara enginn hvenær ávinningurinn er of mikill. Nema þessir þrír menn, frá Frakklandi, Belgíu og Kenýa. Vonandi hafa þeir vandað sig vel og hugsað málið rækilega til enda því hugsanlega er ekki hægt að kæra niðurstöðu þeirra!

Rétt er að velta því fyrir sér hvers vegna Hamilton skar beygjuna. Sú spurning er fyllilega réttmæt. Niðurstaðan er sú að hann átti ekki annarra kosta völ. Nema láta Räikkönen keyra inn í sig. Hann var kominn rúmlega upp að hlið Ferraribílsins á leið inn í beygjuna. En Räikkönen þvingaði hann einfaldlega út úr henni. Það sést greinilega er atvikið er skoðað. Það er ég búinn að gera margsinnis frá í gær.

Ég ætla ekki að segja að Räikkönen hafi haft rangt við með því. Þetta gerist einfaldlega oft í návígi sem þeirra Hamiltons. Og oftast grípa ökumenn þá til gagnráðstafana til að afstýra árekstri. Það gerði Hamilton.

Landi Kimi, Heikki Kovalainen, var réttilega sendur aukaferð gegnum bílskúrareinina fyrir svipað framferði snemma í kappakstrinum. Nema sá rakst utan í keppinaut sinn og olli með því afstýranlegum árekstri. Hvað hefðu dómararnir gert ef Hamilton hefði ekki vikið frá er á hann var lokað og þeir Räikkönen skollið saman. Hver hefði þá talist sökudólgur? Räikkönen hugsanlega, samanber Kovaleinen-Webber atvikið. Hefði það ekki verið rökrétt?

Það versta við þessa niðurstöðu er að nú fá allar kenningar um að verið sé að hygla Ferrari byr undir vængi á ný. Það lét ekki á sér standa í Spa í gær og í fjölmiðlum um heimsbyggðina alla í morgun. Úr verður málaþras sem tekið getur margar vikur að fá botn í. Og einhver óvissa ríkir um hvort hægt sé að kæra dómaraákvörðun af því tagi sem Hamilton var veitt.

Það ágreiningsefni þarf því að leiða fyrst til lykta, áður en tekið er á sjálfri refsingunni. Fáist það samþykkt hef ég ekki mikla trú á að niðurstöðu dómaranna verði raskað. Í langflestum tilvika hefur áfrýjunarréttur Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) einungis staðfest fyrri ákvarðanir fulltrúa FIA, sem dómararnir í þessu tilviki eru.

Endirinn á þessum skemmtilegasta kappakstri ársins er leiður. Farsi í boði dómara sem hætt hafa sér út á vægast sagt afar hálan ís. Kimi Räikkönen hafði sýnt sínar bestu hliðar og ekið sem kóngur í Spa. Hefði verið afar vel að sigri kominn. Og hleypt nýju fjöri í keppnina um heimsmeistaratitilinn. Massa situr aftur á móti upp með sigur í móti þar sem hann kom aldrei við sögu keppninnar um tvö efstu sætin. Ansi innantóm verðlaun það.
Ég bara ver að vera sammála þessum manni og stend ég við það að ef þessi dómur stendur þá er ég hættur að horfa á formúluna punktur,ég hef í gegbum tíðina haldið með hverju sem er nema mclaren þannig að málið er ekki það að ég sé die hard fan,heldur fannst mér þetta kjánalegt og ekkert annað,þegar raikkonen keyrir aftaná og tekur menn útúrkeppni er ekkert gert,en þegar það er keyrt aftaná hann og hann dettur út þá er refsingum beitt......
Skítalykt af þessu og ekkert annað.

Hilmar(sem taldi sig vita hvernig kappakstur gengi fyrir sig)

_________________
Hilmar B Þráinsson S 822-8171


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 13 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group