Hæ, ég reikna fastlega með að þú sért með M30 mótor.
Og þú ert sennilega að leita að því hvernig vélin á að vera á top dead center.
Ég fann því miður ekki góðar mynd á netinu hvernig þetta á að vera, en ég skal reyna útskýra þetta.
Ef ég hef eitthvað misskilið, og þú ert að meina eitthvað annað þá bara sorry.
Annars vona ég að þetta séu skiljanlegan útskýringar.
Það er mjög auðvelt að sjá það á neðra tímakeðjuhjólinu merkinguna fyrir ofan það.
Þú stendur farþegamegin / hægra megin við bílinn.
Á efra tímakeðjuhjólinu eru engar merkingar svo ég viti.
En það eru fjórir skrúfuboltar á tímakeðjutannhjólinu, og svo er pinni til að passa að tannhjólin sé á réttum stað.
Ef þú hugsar þér tvær línur þvert yfir miðjuna, á milli boltana, sem mynda kross.
Hugsar þér þetta sem fjóra hluta. Þá á stilliskrúfan að vera í neðri vinstri hlutanum og ímynduðu línunar eiga að vera í beinni línu á móti heddinu. Semsagt ímyndaða lágréttalínan á að vera í 0° miðað við heddið (eða vélina) og lóðrétta línan í 90°.
Þetta er miðað við að þú sért fyrir framan bílinn og horfir beint á tannhjólið.
Passaðu að rugla ekki saman, vélin hallar smá í bílnum, semsagt að miða hjólið við hallann á vélina eða heddinu, ekki bílnum.
Jæja, gangi þér allavega vel, hvort sem þetta hjálpaði eða ekki.